
Ný sýning opnar hjá okkur í Safnahúsinu 5. september undir yfirskriftinni Breytingar á Norðurslóðum í samstarfi við rannsóknarhópinn Changes on Northern Shores (CNS). Hópurinn samanstendur af listamönnum og vísindafólki sem á það sameiginlegt að vinna að því að varpa ljósi á þær breytingar sem eiga sér stað á Norðurslóðum. Þau tengja saman listir og vísindi og með því leitast hópurinn við að varpa ljósi á hnignun líffræðilegs fjölbreytileika norðurslóða og þær loftslagsbreytingar sem eiga sér stað þar og um leið hvetja til aukinnar umhugsunar um sjálfbærni og umhverfismál.
Auk sýningarinnar sem stendur frá 5. september fram til 2. nóvember, verða málstofur og vinnustofur í tengslum við listir og umhverfismál á sýningartímabilinu.
Þátttakendur í sýningunni eru þau: Ásthildur Jónsdóttir, Fernando Ugerte, Filipa Samarra, Josefina Posch, Kaisu Koivisto, Liisa Kanerva, Mark IJzerman, Ove Mikal Pedersen, Sara De Clerck, Sébastien Robert, Tiu Similä, Tulle Ruth og Valgerður Hauksdóttir.