12. nóvember, 2026
Allar Fréttir

Mánudaginn 23. nóvember 2026 kl. 20:00 verður bókakynning í Safnahúsinu.

 

Höfundar koma og kynna nýútkomnar bækur:

 

Helga Skúladóttir – Valdís, öll þessi þögn, bókin er auðlesin og grípandi spennusaga sem gerist í Borgarnesi.

Jovana Pavlović – Antithesis, ljóðabók sem gagnrýnir normið; hið sjálfgefna sjónarhorn sem sjaldan þarf að réttlæta tilvist sína.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – Deig, ljóðabók um tímann, hversdaginn og töfrastundirnar. Hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2026.

Sigrún Elíasdóttir – Dagbók miðaldra unglings, bókin er gamansöm, kaldhæðin og óvægin skáldsaga af bláköldum veruleika einhleypra kvenna.

 

Eigum notalega bókastund, allir velkomnir.

 

Héraðsbókasafn Borgarfjarðar

Safnahúsinu, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi

Tengdar fréttir