24. september, 2026
Allar Fréttir

Mánudaginn 28. september er dagur bókasafna haldinn hátíðlegur um land allt. Markmið dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafnsins í samfélaginu og vera jafnframt dagur starfsmanna safnanna.

 

Í tilefni dagsins verður sektarlaus dagur á bókasafninu  auk þess sem við bjóðum upp á konfektmola með kaffinu.

Við hvetjum sem flesta til að líta við til okkar þennan dag og sjá hvað er í boði.

Nýir lánþegar og þeir sem hafa ekki komið lengi eru sérstaklega velkomnir!

Tengdar fréttir