Lambalækjaflöt- Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Lambalækjarflöt
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 07.10.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir breytt deiliskipulag Lambalækjarflöt í Borgarbyggð.
Tillagan tekur til breytingu á deiliskipulagi fyrir Hálsabyggð er varðar Lambalækjarflöt. Breytingin felur í sér breytingar á skipulagsskilmálum og skipulagsuppdrætti. Tilefni breytingarinnar er að fyrirhugað er að stofna lóð utan um hverfið Lambalækjarflöt auk þess sem afmörkun lóða við Lambalækjarflöt er uppfærð. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037
Skipulagstillaga er aðgengileg í skipulagsgátt
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 1175/2026) frá 14.10.2026 til og með 25.11.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Borgarbyggð, 14. október, 2026.