Brekkukot – Nýtt deiliskipulag

Brekkukot – Nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Brekkukoti í Borgarbyggð.

Brekkukot

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 07.10.2026 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Brekkukot í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til 20ha lands Brekkukots(L134386) í Borgarbyggð og deilir landamerkjum með lóð Fells og jörðum Hurðarbaks, Deildartungu og Grófar. Fyrirhugað er að útbúa 6 lóðir fyrir íbúðarhús til viðbótar við eitt íbúðarhús sem fyrir er nú þegar á Brekkuhvammi (L178781). Aðkoma yrði um núverandi veg að Brekkuhvammi frá Borgarfjarðarbraut. Gert er ráð fyrir að tvær vegleiðir sem nýttar hafa verið sem aðkoma að lóðum Fells og Hlíðarkletts verði felldar niður og varanleg aðkoma að þeim lóðum verði leyst utan skipulagssvæðisins. Heimilt verði þó að nýta nyrðri vegtenginguna með þeirri kvöð að sú heimild falli niður við næstu endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037.

· Skipulagstillaga er aðgengileg í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 291/2026) frá 14.10.26 til og með 25.11.26 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 14. október, 2026.