Dagverðarnes 62-65, Svæði 8 – Nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Dagverðarnes 62-65, svæði 8
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10.09.2026 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Dagverðarnes í Borgarbyggð.
Tillagan tekur til 6,4ha lóðar Dagverðarnes 62-65, svæði 8 og er ætlunin að skapa skýran ramma utan um heildstæða frístundabyggð og stuðla að því að byggð falli sem allra best að umhverfinu. Aðkoma að svæðinu er frá Skorradalsveg (508). Tillagan samræmist Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022
· Skipulagstillaga er aðgengileg í skipulagsgátt
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 114/2026) frá 08.10.2026 til og með 22.11.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Borgarbyggð, 7. október, 2026.