Hvítárvellir 7 – Breyting á Aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst lýsing og vinnslutillaga að breytingu Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037. Og í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýst lýsing að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Hvítárbakki 7 (L179429) í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13.08.2026 að auglýsa saman lýsingu og vinnslutillögu breytingar á aðalskipulagi og lýsingu á nýju deiliskipulagi Hvítárbakka 7 í Borgarbyggð.
Breytingin tekur til breytinga á skilmálum svæðisins þar sem heimiluðum gistirúmum er fjölgað úr 10 í 112. Auk þess er sett inn heimild fyrir tjaldsvæði og tengdri þjónustu. Markmið með breytingunni er að auka framboð gistiþjónustu á svæðinu.
Í deiliskipulagi verður m.a gerð grein fyrir nýjum byggingarreitum fyrir gististarfsemi, veitingasölu og svæði fyrir tjöld og ferðavagna.
Í Aðalskipulagi Borgarbyggðar er svæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ213).
Aðkoma að svæðinu er frá Borgarfjarðarbraut (50) inn á Bæjarsveitarveg (513) og þaðan inn á Hvítárbakkaveg (514).
Ofangreindar skipulagsáætlanir er auglýstar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 977/2026) frá 27.08 til og með 13.09.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna og/eða vinnslutillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina.
Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar
Borgarbyggð, 27. ágúst, 2026.