Hvítárvellir – Efnistökusvæði – Breyting á aðalskipulagi

Hvítárvellir – Efnistökusvæði – Breyting á aðalskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi í Borgarbyggð.

Hvítárvellir

Byggðaráð samþykkti þann 23.07.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 fyrir efnistökusvæði í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð.

Tillagan tekur til breytingar á landnotkun svæðis í landi Hvítárvalla úr landbúnaðarland í efnistökusvæði. Markmið breytingarinnar er að heimila allt að 35.000 m³ efnistöku á um 2 ha svæði í selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár. Í undirbúningi er lagning 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkis á Vatnshömrum og Ferjubakka undir Hvítá. Stefnt er að því að nýta efni úr landi Hvítárvalla fyrir framkvæmdina þar sem styttra er að sækja efni þar. Aðkoma að svæðinu er frá Hvítárvallavegi (510) um núverandi slóða sem er á skrá yfir vegi í náttúru Íslands.

Skipulagstillaga er aðgengileg í skipulagsgátt
Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt HMS (www.skipulagsgatt.is) mál nr. 621/2026) frá 13.08.26 til og með 27.09.26 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina, senda tölvupóst á skipulag@borgarbyggd.is eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 13. ágúst, 2026.