Hraunsás III – Tillaga aðalskipulagsbreytingar

Hraunsás III – Tillaga aðalskipulagsbreytingar

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir Hraunsás III í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. desember 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Tillagan tekur til breytingar á landnotkun svæðis í landi Hraunsáss III (L204514) úr frístundabyggð í verslunar- og þjónustusvæði. Aðkoma að svæðinu er frá Hálsasveitavegi (NR518). Skipulagstillagan er aðgengileg hér í skipulagsgátt

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 6. mars til og með 19. apríl og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við tillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagssviði.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 6. mars, 2025.