Varmaland – Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Varmaland – Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Varmalandi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13. febrúar 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á  deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Varmalandi í Borgarbyggð.

Með breytingunni er verið að færa lóðarmörk og legu vega. Fjölga íbúðum með því að fella niður
rað- og parhúsalóðir og skilgreina fjölbýlishúsa lóð.

Skipulagstillagan er aðgengileg hér í skipulagsgátt.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 6. mars til og með
19. apríl og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við tillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagssviði.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 6. mars, 2025.