Hraunsás 3, frístundabyggð – Lýsing á breytingu aðalskipulags

Hraunsás 3, frístundabyggð – Lýsing á breytingu aðalskipulags

 

Í samræmi við 1. mgr. 30. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing á breytingu Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. maí 2024 að auglýsa lýsingu að breytingu á landnotkun frístundabyggðar í landi Hraunsáss 3 yfir í verslunar- og þjónustusvæði.

Lýsingin tekur til 19 ha landsvæðis austur af bænum Hraunsás 3 í Hálsasveit í Borgarbyggð. Fyrirhugað er að skilgreina núverandi frístundabyggð sem verslunar- og þjónustusvæði og reisa þar 25 gistihús fyrir ferðamenn ásamt þjónustuhúsi. Aðkoma að lóðum er frá Hálsasveitarvegi (518).

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is) frá 23. maí til og með 6. júní 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 23. maí, 2024.