Dýrahald
Í Borgarbyggð er heimilt að halda hunda og ketti í þéttbýli og þarf að sækja um leyfi til þess til sveitarfélagsins. Öll gæludýr, í þéttbýli og dreifbýli er þó skylt að einstaklingsmerkja og skrá í miðlægan gagnagrunn sem Matvælastofnun samþykkir. Sótt er um leyfi til gæludýrahalds í þéttbýli á Þjónustugátt Borgarbyggðar. Dýrahald í dreifbýli er á höndum eigenda að skrá í miðlægan gagnagrunn Matvælastofnunar.
Hundagerði er í Borgarnesi, staðsett við Hringveg, milli leikskólans Klettaborgar og tjaldsvæðis bæjarins. Hundaeigendur geta þar leikið sér við hunda sína og leyft þeim að ganga frjálsum.
Gæludýraeftirlit er í höndum áhaldahúss. Hægt er að koma fyrirspurnum og ábendingum til verkstjóra áhaldahúss á netfangið ahaldahus@borgarbyggd.is eða í síma 4337100.
Dýralæknar eru nokkrir starfandi í sveitarfélaginu og er vaktsími dýralæknis Matvælastofnunar 878-0800.