17. júní Borgarbyggð

Fjölbreytt og lífleg 17. júní hátíð í Borgarbyggð

Í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga verður mikið um að vera víðs vegar um Borgarbyggð þann 17. júní. Dagskráin býður upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla aldurshópa.

Klukkan 10:00 hefst íþróttahátíð á Skallagrímsvelli og 17. júní hlaupið á sínum stað. Samhjól í boði HjólVest verður á staðnum en áætlar er að það hefjist 10:15. Við hvetjum alla til að mæta á hjólum og með hjálma á hausnum.
10:00-12:00 er opinn dagur í skóginum í Einkunnum, en Landsverðir ætla þá að bjóða gestum í notalega fjölskyldustund. Kakó og kaffi, blómabingó og kyrrðarstund.

08:00 FÁNAR DREGNIR AÐ HÚNI
Dagurinn hefst á að fánar eru dregnir að húni en Borgarbyggð hvetur alla íbúa sem hafa tök á, að flagga íslenska fánanum.

10:00-12:00 OPINN SKÓGUR Í EINKUNNUM
Opinn dagur í skóginum í Einkunnum, en Landsverðir ætla þá að bjóða gestum í notalega fjölskyldustund. Kakó og kaffi, blómabingó og kyrrðarstund.

10:00 Íþróttahátíð á Skallagrímsvelli
17. júní hlaupið verður á sínum stað.

10:15 SAMHJÓL Í BOÐI HJÓL VEST.
Við hvetjum alla til að mæta hjólandi og með hjálm á hausnum.

11:30-13:00 SAFNAHÚS
Kl. 12.00 kemur sirkuslistamaðurinn Daníel í heimsókn í Safnahúsið með sirkus sem sértaklega er hugsaður fyrir yngstu áhorfendurnar.  
Auk sirkus verður föndurhorn á milli 11:00 –13.00 þar sem hægt verður að föndra fána fyrir skrúðgönguna. 

12:30-13:30 ANDLITSMÁLNING Í ÓÐALI
Öll börn hjartanlega velkomin að fá andlitmálningu og hita upp fyrir skrúðgöngu.

13:00 Hátíðarmessa í Borgarneskirkju 

13:30 SKRÚÐGANGA
Gengið frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð þar sem hátíðardagskrá fer fram. Trommusláttur á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Óvæntar furðuverur verða með í skrúðgöngunni.  

13:45 HÁTÍÐARDAGSKRÁ Í SKALLAGRÍMSGARÐI

Kynnar eru þau skemmtilegu og uppátækjasömu Bolli og Bjalla, sem margir kannast við úr Stundinni Okkar.

HÁTÍÐARRÆÐA, INGIBJÖRG HARGRAVE
Ingibjörg Hargrave flytur hátíðaræðu fyrir gesti

ÁVARP FJALLKONU

UNA TORFA

stígur og sviðið og flytur tónlist sína.

LISTAMANNESKJA BORGARBYGGÐAR

KRISTBJÖRG RAGNEY
Sigurvegari söngkeppni Samvest tekur lagið

TRÖLLABÖRNIN
Óvenjuleg börn mæta á svæðið og skemmta gestum og gangandi.

BLAÐRARINN
Verður á staðnum og býr til listaverk úr blöðrum fyrir börnin.

HOPPUKASTALAR OG TEYGJUHOPP
Hoppukastalarnir verða að sjálfsögðu á sínum stað ásamt teygjuhoppi

KAFFI- OG VÖFFLUSALA KVENFÉLAGSINS

FRÍTT Í SUND
Í tilefni af 70 ára afmæli innilaugarinnar í Borgarnesi þann 17. júní er frítt í allar sundlaugar Borgarbyggðar.

09:00-12:00 Í Borgarnesi
09:00-18:00 á Kleppjárnsreykjum
14:00-20:00 á Varmalandi

Lindartunga
Kvenfélagið Björk og Ungmennafélagið Eldborg standa fyrir hátíðarhöldum. Hefðbundin 17. júní útihátíðardagskrá í Lindartungu.

Hvanneyri
UMFÍ Íslendingur stendur fyrirhátíðarhöldum kl.11:30.
lagt verður af stað frá Sverrisvelli út í skjólbeltin.
Grill verður á staðnum þar sem hver grillar fyrir sig og sína. Farið verður í poka hopp og hjólböru kapp, allir velkomnir!

Reykholt
Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðarhöldum.
Útihátíðardagskrá í Logalandi – Hátíðarræða, fjallkonan, grillaðar pylsur, karamelluflugvélin og leikir


Varmaland

09:00 – 12:00 Ókeypis í sund í tilefni dagsins

Kleppsjárnsreykir

09:00 – 12:00 Ókeypis í sund í tilefni dagsins

 

Ath tímasetningar og staðsetningar gætu breyst.