Vinnuskóli

Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita ungmennum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum ungmennum sem nýlokið hafa 8., 9. og 10. bekk býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni (fædd 2009-2011).

Vinnuskólinn er starfræktur í júní og júlí ár hvert og er leitast við að veita öllum ungmennum búsettum í Borgarbyggð starf í Vinnuskólanum. Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, lögð er áhersla á gleði, vinnu og lærdóm þar sem námsefni og verkefni vinnuskólans samanstendur af fræðslu, tómstundum og vinnu.

Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglinga fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á samskiptareglur, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og samstarfsfólki. Einnig eru grundvallaratriði í vinnubrögðum kynnt og notkun verkfæra. Þá eru félagsleg samskipti og samvinna mikilvægir þættir í Vinnuskólanum auk fræðslu og kynningum af ýmsu tagi, sem fléttað er inn í starfsemina.

Allir nemendur fá umsögn í lok Vinnuskólans sem getur nýst vel þegar sótt er um önnur störf. Daglegur rekstur skólans er í höndum íþrótta- og tómstundafulltrúa, forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Óðals og yfirflokkstjóra.

Vinnufyrirkomulag

Ath! Ekki verður boðið upp á skráningu fyrir börn sem hafa nýlokið 7. bekk eins og stundum hefur verið.

Ungmenni fædd 2009, 2010 og 2011 geta valið um allar vikur sem í boði eru. Vinnutími er mánudaga til fimmtudaga kl. 09 – 15 og á föstudögum frá kl. 08:30-11:30.

Í kjarasamningum eru ekki lengur skilgreindir matar- og kaffitímar. Þess í stað taka nemendur neysluhlé í samráði við flokkstjóra eða umsjónarmann á starfsstöð.

Setning vinnuskólans verður fimmtudaginn 5.júní klukkan 09:00 í félagsmiðstöðinni Óðali og er ætlast til þess að allir nemendur í vinnuskólanum mæti þangað. Þar verður farið yfir starfsemi sumarsins, veittar upplýsingar,  fræðsla og hópefli. Rúta mun sækja nemendur frá Hvanneyri, Reykholti og Bifröst og keyra aftur heim að dagskrá lokinni.

Fyrsti vinnudagur verður mánudaginn 9. júní og mæta nemendur þá til vinnu á sína starfsstöð. Nánari upplýsingar munu berast nemendum þegar búið er að vinna úr umsóknum.

Yfir sumarið eru 4-5 dagar tileinkaðir samveru, skemmtun og forvarnarvinnu. Farið verður í ferð í lok sumars sem er skipulögð með ungmennunum sjálfum. Þessar dagsetningar munu liggja fyrir áður en Vinnuskólinn hefst.

Vinnuskólinn starfar samkvæmt samþykktum Borgarbyggðar en ekki samkvæmt lögskipaðri námskrá og er því ekki skólaskylda í vinnuskólanum. Nemendum stendur til boða að vinna á 17.júní hátíðum í Borgarbyggð og verður sérstakur póstur sendur út þegar nær dregur til að óska eftir skráningum.

Starfsstöðvar

Stefnt er að því að ungmenni fædd 2007-2010 geti óskað eftir því að vinna önnur störf utan almenna garðyrkjustarfa í eina til tvær vikur yfir tímabilið.

Starfsstöðvar vinnuskólans eru í Borgarnesi, á Hvanneyri, á Kleppjárnsreykjum og á Bifröst. Á Hvanneyri sér LBHÍ um útihóp Vinnuskólans. Hægt er að sækja um starfsstöðvar í öllum hverfum og mun Vinnuskólinn samnýta rútuferðir með Sumarfjöri til þess að koma nemendum á milli staða.

  • Borgarnes:

Útihópur

Leikskólinn Klettaborg

Aldan hæfing

Umhirða íþróttasvæða

Knattspyrnudeild Skallagríms

Skógræktarfélag Borgarfjarðar

Skapandi Vinnuskólinn

  • Hvanneyri:

Útihópur

Leikskólinn Andabær

  • Kleppjárnsreykir:

Leikskólinn Hnoðraból

  • Bifröst

Golfklúbburinn Glanni

Skapandi vinnuskólinn:

Skapandi vinnuskólinn er í samstarfi með Listaskóla Borgarfjarðar og SSV en megin markmið verkefnisins er að ungmenni sem ráða sig til starfa hjá Vinnuskólanum hafi tækifæri til að vinna í skapandi störfum. Nánari upplýsingar um verkefni Skapandi Vinnuskólans koma þegar nær dregur sumri.

Efnileg ungmenni sem stunda íþróttir, tómstundir og listir.

Öll ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára, með lögheimili í Borgarbyggð, sem skara fram úr og hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrk til að stunda sínar íþróttir, tómstundir og listir. Markmið með þessu er að koma til móts við þau ungmenni sem geta ekki með sama hætti og jafnaldrar þeirra unnið sumarvinnu hjá Borgarbyggð vegna mikils álags, skipulags eða annarra þátta. Börn sem sækja æfingar utan sveitarfélagsins hafa tækifæri til að sækja um styrkinn.

Við biðjum þau sem uppfylla skilyrði um þennan styrk að sækja um útihóp og skrifa „Styrkur vegna efnilegra ungmenna“ í reitinn „Annað“. Vinnuskólinn mun svo hafa samband til þess að óska eftir frekari gögnum í samræmi við reglur Borgarbyggðar. Nánari upplýsingar sjáið þið hér

Skráning

Forsjáraðilar skrá ungmenni í Vinnuskólann í gegnum Völu – sjá hér.

Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum. Ef rafræn skilríki eru ekki til staðar er hægt að hafa samband við vinnuskolinn@borgarbyggd.is. Mikilvægt að til sé bankareikningur í nafni ungmennis, án hans er ekki hægt að ljúka skráningu.

Skráning verður opin til miðnættis 11. maí. Þann 12. maí hefst úrvinnsla umsókna og fljótlega eftir það verða sendar út upplýsingar um nánara skipulag og röðun á starfsstaði.

Gott er að gefa upp netfang sem mest er notað bæði hjá forsjáraðila og ungmenni til að greiða fyrir samskiptum. Í skráningarferlinu er svo óskað eftir upplýsingum um sérþarfir ungmennis, heilsufar (einkum ef það getur haft áhrif á starfsgetu ungmennis) og loks er hægt að bæta við öðrum athugasemdum.

Laun í vinnuskólanum

Tímakaup sumarið 2025 er eftirfarandi:

Fæðingarár                 Tímakaup

2011                                910 kr.

2010                               1.214 kr.

2009                              1.517 kr.

 

Hvert er launatímabilið?

Launatímabil ungmenna eru eins og hjá öðru tímavinnufólki hjá Borgarbyggð, frá 16.hvers mánaðar til 15. þess næsta.

  • Júlí: Greiðsla fyrir dag/a til og með 15.júní.
  • Ágúst: Greiðsla fyrir 16.júní – 15.júlí.
  • September: Greiðsla fyrir 16.júlí – 15.ágúst.

Hvar sé ég launaseðla?

Launaseðlar birtast í pósthólfi nemenda á island.is.

Fæ ég orlof?

Orlofsfé er 13,04% og greiðist á alla tímavinnu. Orlof er greitt út með laununum.

Þurfum við að greiða skatta?

Á því ári sem ungmenni verða 16 ára byrja þau að greiða skatt en eins og aðrir launþegar eiga þau rétt á persónuafslætti sem er 68.691 kr. á mánuði árið 2025. Sú upphæð nægir til að mæta þeim skatti sem ungmennin myndu annars greiða af sínum launum í Vinnuskólanum.

Vinnuskóli Borgarbyggðar mælir með því að allir 16 ára nemendur og eldri nýti persónuafslátt sinn. Vakin er athygli á því að þeir sem vilja nýta persónuafsláttinn verða að senda tölvupóst á launafulltrui@borgarbyggd.is og óska eftir því sérstaklega.

Greiðum við í lífeyrissjóð?

Aðeins nemendur sem hafa náð 16 ára aldri greiða í lífeyrissjóð og er miðað við afmælisdag.

Hvað með veikindi og leyfi?

Nemendur Vinnuskólans vinna sér ekki inn veikindarétt. Veikindadagar eru því ekki greiddir. Mikilvægt er þó að tilkynna fjarvistir vegna veikinda eins fljótt og hægt er. Hægt er að fá leyfi frá störfum á starfstímabilinu en forsjáraðilar þurfa að tilkynna frítöku með fyrirvara til yfirflokkstjóra.

Reglur

Reglurnar gilda jafnt á vinnutíma sem og við önnur störf á vegum Vinnuskólans.

  • Flokksstjóri er verkstjóri á vinnustað. Næsti yfirmaður hans er yfirflokksstjóri.
  • Öllum nemendum og starfsfólki ber að vera vinnusamt, stundvíst, heiðarlegt og kurteist.
  • Einelti, áreitni og ofbeldi er ekki liðið í vinnuskólanum.
  • Veikindi og önnur forföll ber að tilkynna tímanlega í gegnum Völu vinnuskólakerfi eða með því að hafa samband við yfirflokksstjóra.
  • Pásur og neysluhlé eru eftir samkomulagi milli flokkstjóra og nemenda
  • Vinnuskólinn er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður. Ekki er leyfilegt að vera með orkudrykki.
  • Nemendum ber að ganga vel og þrifalega um á vinnustað og fara vel með þau áhöld sem notuð eru. Ef áhöld eru skemmd af ásettu ráði dregst það frá launum viðkomandi starfsmanns.
  • Notkun farsíma er ekki leyfileg á vinnutíma, nema flokkstjóri gefi leyfi um annað.
  • Öll ungmenni útvega sjálf sinn hlífðarfatnað og bera þau ábyrgð á eigin fötum og eigum.

 

Reglur vinnuskólan vegna efnilegra ungmenna