Sundlaugar og íþróttamannvirki
Sundlaugar og íþróttamannvirki eru á þremur stöðum í Borgarbyggð, í Borgarnesi, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi.
Völlurinn, sem er við Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi er 105m x 68m að stærð, við hann er grasstúka fyrir áhorfendur og 6 brauta fullkominn frjálsíþróttavöllur lagður Politan gerfiefni þar sem trimmarar og skokkarar hafa einnig aðgang að. Við enda vallarins er 115 x 80 m æfingasvæði fyrir knattspyrnuiðkun og tilhliðar við æfingavöllinn er sparksvæði sem almenningur hefur aðgang að.Bent er á heimasíðu Ungmennafélagsins Skallagríms varðandi mót og æfingar á vellinum.
Þorsteinsgötu 1Sími: 433 7140
Netfang: sundlaug@borgarbyggd.isÍ íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi fara fram skólaíþróttir barna í Grunnskólanum í Borgarnesi, ásamt íþróttaæfingum íþróttafélaga í Borgarbyggð.Sundlaugin í Borgarnesi er staður fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu er að finna þrjá heitapotta, innilaug, útilaug og vaðlaug. Þrjár rennibrautir eru á útisvæðinu sem njóta mikilla vinsælda.
Ásamt þessu má finna gufubað, sánu og kaldan pott.Einnig er þar að finna aðal þreksal Borgarbyggðar með öllum helsta búnað til iðkunar líkamsræktar.
VarmalandiSími: 437 1401 Sundlaugin á Varmalandi er opin almenningi á sumrin.Sumaropnun 6.júní – 17.ágúst opið alla daga frá 14:00 – 20:00. Vetrarlokun frá 17. ágúst til júní 2026Íþróttamiðstöðin á Varmalandi er fyrst og fremst skólamannvirki á veturna en almenningur getur komist í þreksal, heitan pott og sundlaug á skólatíma verði því við komið vegna kennslu.
Æfingar hjá Ungmennafélagi Stafholtstungna eru seinni part dags og auglýstar sérstaklega í Grunnskóla Borgarfjarðar og víðar.
Á sumrin er rekið tjaldstæði á svæðinu.
Félagsheimilið Þinghamar er leigt út fyrir ýmiss tilefni (t.d. ættarmót).
KleppjárnsreykjumSími: 435 1140. Í Íþróttamiðstöðinni á Kleppjárnsreykjum fara fram skólaíþróttir barna í Grunnskóla Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjardeild, sundæfingar og þrek. Æfingar hjá Ungmennafélagi Reykdæla eru auglýstar á töflu íþróttamiðstöðvarinnar, í Grunnskóla Borgarfjarðar og víðar.
Sumaropnun 2026 (6. júní – 14. ágúst):
-
- Mánudaga – föstudaga: kl. 09:00 – 18:00
-
- Laugardaga – sunnudaga: kl. 09:00 – 18:00