Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026.
Rafræn meðmælasöfnun
Öll framboð eru hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi til söfnunar meðmæla.
Nánari upplýsingar um kerfið má finna hér á vef Landskjörstjórnar: Meðmælasöfnun
Stjórnmálasamtök sem ætla að skila inn framboðum til sveitarstjórnakosninga geta stofnað rafræna meðmælasöfnun með framboði í komandi sameinuðu sveitarfélagi.
Þar sem ekki búið er að sameina sveitarfélögin og meðmæli eru tengd lögheimils skráningu þarf að stofna meðmælasöfnun í báðum sveitarfélögum.
Sami framboðslistinn þarf því að skrá sig inn á island.is í Skorradal og Borgarbyggð til að safna meðmælum.
Þeir sem hafa lögheimili í Skorradal geta mælt með lista rafrænt inn á island.is og á sama hátt og þeir sem hafa lögheimili í Borgarbyggð geta mælt með lista rafrænt inn á island.is í Borgarbyggð.
Söfnun meðmæla á pappír
Ef notast er við rafræna meðmælendakerfið er hægt að slá þær kennitölur inn í meðmælenda kerfið og fá þannig upp stöðu á meðmælasöfnuninni en skila þarf inn frumriti meðmælalistanna við skil á framboðinu.
Hér má nálgast eyðublað til þess að safna meðmælum á pappír.
Umsóknarfrestur framboða er til og með 10. apríl 2026 kl. 12:00.
Gætið þess að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum innan tilskilins frests. Tekið verður á móti meðmælalistum á pappír á skrifstofu Borgarbyggðar þann 10. apríl frá kl. 10:00-12:00.
Kjörstjórn
Yfirkjörstjórn sameiginlegs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps skipa: Sveinbjörn Eyjólfsson, Sóley B. Sigurþórsdóttir og S. Fjóla Benediktsdóttir, aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari leiðbeiningum, vinsamlegast hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eða skorradalur@skorradalur.is
Síðan verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.
Uppfært 20. mars 2026