Sumarfjör 2026

Skráning í sumarfjörið er hafin inn hér
Boðið verður upp á vikunámskeið frá kl. 9:00-16:00.
Við stefnum á að bjóða upp á viðbótartíma milli 8:00 og 9:00 sem skrá þarf sérstaklega í. 
Sumarfjör er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4.bekk í Borgarbyggð.
Hver vika í sumarfjöri er þematengd. Aðaláhersla er lögð á útivist og leiki, einnig verður farið í stuttar ferðir.
Sumarfjörið hefst 11. júní og lokadagur er 21. ágúst.
Sumarlokun er frá og með mánudeginum 6. júlí til og með mánudeginum 3. ágúst.
Sumarfjör hefst aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 4.ágúst kl.10:00.
 
Umsóknarfrestur er til 13.maí 2026.
Við mælum þó alltaf með að skrá börn sem fyrst þar sem fjöldatakmörk eru á námskeiðin.
Ef námskeið fyllist er hægt að skrá barn á biðlista.
Afskráning:
Ef þið viljið af einhverjum ástæðum afskrá börn af námskeiði þarf að afskrá:
  • Fyrir júní & júlí námskeið lýkur afskráningu sunnudaginn 31.maí
  • Fyrir ágúst námskeið lýkur afskráningu sunnudaginn 19.júlí
 
Eftir að afskráningartíminn er liðinn er skráning barns bindandi og ekki hægt að fá námskeiðið endurgreitt hvort sem barn mætir eða ekki.
 
Gjaldskrá:
Verð fyrir vikuna = 9.546 kr
Viðbótarstund fyrir vikuna frá kl.8:00 – 9:00 = 2.900 kr
Systkinaafsláttur er 50% fyrir systkini sem skráð eru í sömu vikuna í Sumarfjör.
 
 
Rútuferðir
Boðið verður upp á rútuferðir á starfsstöð í byrjun dags og til baka seinnipartinn:
GBF- hringurinn:  Baula (verslun), Kleppjárnsreykir (Hverinn sjoppan) og Hvanneyri (grunnskóli) – Borgarnes (grunnskóli).
Bifröst: Stoppistöð í strætóskýlinu
MýrarStoppustöðvar eru á Lyngbrekku & Brúarfossi.
Lágmarkskráning í rútuferðir eru fjögur börn. Ef lágmarksskráning næst ekki munum við leita annarra lausna.
Hægt er að hafa samband í síma 847-7997 og á netfangið sumarfjor@borgarbyggd.is