Innkaup

Það er stefna Borgarbyggðar að innkaup sveitarfélagsins stuðli að hagkvæmni í rekstri og hvetji um leið til nýsköpunar og framsækinnar þróunar í atvinnulífi, með virðingu fyrir umhverfi og samfélagi að leiðarljósi.

Borgarbyggð vinnur að því með eftirfarandi hætti:

  • Að við innkaup sé þess gætt að ákvæðum laga og reglna er varða innkaup sé fylgt í hvívetna.
  • Að gætt sé jafnræðis þeirra sem viðskipti eiga við sveitarfélagið.
  • Að innkaupareglur og innkaupaaðferðir séu skýrar og gagnsæjar.
  • Að beitt sé markvissum og skipulögðum vinnubrögðum við innkaup og með þeim stuðlað að hagkvæmni í rekstri og framkvæmdum sveitarfélagsins.
  • Að við innkaup sé auk kostnaðar tekið tillit til gæða-, umhverfis- og mannréttindastjónarmiða.
  • Að stuðla að samkeppni á markaði varðandi sölu á vörum, verkum og þjónustu til sveitarfélagsins.
  • Að samræma innkaup fyrir einstaka stofnanir og fyrirtæki sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem hagkvæmt þykir.