Menningarsjóður Borgarbyggðar

Menningarsjóður Borgarbyggðar var stofnaður í Borgarnesi 22. mars 1967 í tilefni af 100 ára verslunarafmæli staðarins, en nú starfar sjóðurinn á öllu svæði Borgarbyggðar. Stofnfé sjóðsins var ein milljón króna sem greidd var af Borgarneshreppi árin 1968-1977. Tekjur sjóðsins eru árlegt framlag bæjarsjóðs Borgarbyggðar, vextir, áheit, minningargjafir og aðrar gjafir til menningarmála.

Eftirtaldir eiga sæti í stjórn sjóðsins 2026 – 2030:

  • Jónína Erna Arnardóttir – Formaður
  • Jenný Lind Egilsdóttir – Varaformaður
  • Halldóra Guðjónsdóttir – aðalmaður
  • Eiríkur Jónsson – aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir – aðalmaður

Varamenn:

  • Guðrún Vala Elísdóttir
  • Svana Hrönn Jóhannsdóttir
  • Kristján Guðmundsson
  • Sigurþór Kristjánsson
  • Tinna Rut Þórarinsdóttir

     

Tilgangur menningarsjóðs er að megin stoð í menningarlífi Borgarbyggðar og leggja í starfi sínu sérstaka rækt við grasrótina í menningarlífi á svæðinu.

Úthlutanir styrkja úr sjóðnum fara fram tvisvar ár hvert. Fyrri úthlutunin skal fara fram fyrir þann 1. maí og hin síðari fyrir þann 1. október.