17. júní Borgarbyggð

Borgarnes

08:00 Fánar dregnir að húni, Borgarbyggð hvetur alla íbúa til að draga fána að húni í tilefni dagsins.

10:00 Íþróttahátíð á Skallagrímsvelli. Sautjánda júní hlaup fyrir fólk á öllum aldri.

11:00 – 14:00 Safnahús fjölskylduskemmtun, ljósmyndasýning og svipmyndir frá starfi Húsmæðraskólans á Varmalandi, 

12:00 – Sirkus fyrir þau allra yngstu

13:00 – Leiðsögn um sumarsýningu Safnahúss Í dagsins önn og inn í Safngeymslur

12:30 Guðsþjónusta í Borgarneskirkju

12:30 – 13:30 Andlitsmálning í Óðali, hitað upp fyrir skrúðgöngu

13:30 Skrúðganga Gengið frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð. Trommusláttur á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar.

14:00 Hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði

Hátíðarræða, Sigursteinn Sigurðsson

Ávarp fjallkonu

Lára og Ljónsi

Diljá Pétursdóttir

Listamanneskja Borgarbyggðar

Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar

 

Jovana Pavlović verður kynnir

Hoppukastalar og kaffisala kvenfélagsins verða á sínum stað.

Teygjuhopp á körfuboltavelli

Slökkviliðið mætir á svæðið og sýnir búnaðinn sinn og spjallar við gesti og gangandi

Boðið verður upp á bollakökur í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins

 

14:30 – 17:30  Píludeild Skallagríms býður á opna æfingu, Grillhúsinu Borgarnesi

16:30 Hestamannafélagið Borgfirðingur býður börnum á hestbak, Vindási

 

 

Hvanneyri

11:30 UMFÍ Íslendingur stendur fyrir hátíðarhöldum, lagt verður af stað frá Sverrisvelli út í skjólbeltin. Grill verður á staðnum þar sem hver grillar fyrir sig og sína. Leikir, skemmtun, gleði og gaman, allir velkomnir og vonast er til að sjá sem flesta.

Reykholtsdalur

Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðarhöldum

 11:00  Hátíðarmessa í Reykholti og verður riðið til messu kl 10 frá Gróf og Kópareykjum og kl 10:15 frá Hofsstöðum.
 13:00  Útihátíð í Logalandi. Seldar verða grillaðar pylsur og krap ásamt öðru hefðbundnu góðgæti í anda sautjándans. Hátíðarræða, fjallkonan, froðurennibraut og að sjálfsögðu karamelluflugvél. Mælum með að þau sem ætla að renna sér í froðunni taki með handklæði og föt sem henta í sull.

Lundareykjadalur

14:00 Ungmennafélagið Dagrenning sér um hátíðardagskrá.
Hátíðin hefst með bátakeppni við Skarðshyl. Kaffistund í Brautartungu, leikir og víðavangshlaup. Kvöldgrill, spil o.fl. skemmtilegt. Hver og einn leggur eitthvað til á kökuhlaðborðið og grillið.

Lindartunga

14:00 Kvenfélagið Björk og Ungmennafélag Eldborg stendur fyrir hátíðarhöldum. Hefðbundin 17. júní úti hátíðar dagskrá í Lindartungu.

Varmaland

14:00 – 20:00 Ókeypis í sund í tilefni dagsins

Kleppsjárnsreykir

09:00 – 18:00 Ókeypis í sund í tilefni dagsins

 

„Ath tímasetningar og staðsetningar gætu breyst.“