Tjaldstæði í Borgarbyggð

Tjaldstæðið í Borgarnes er miðsvæðis og við hringveginn. Fallegt útsýni er þar að finna yfir Borgarvoginn þar sem stutt er í fjöru. Rafmagn er á svæðinu og salernisaðstaða.
Húsafell
Tjaldsvæðið í Húsafellsskógi hefur notið mikilla vinsælda í áraraðir. Stæðin eru á miðju orlofssvæðinu í göngufæri í sund, golf, leiktæki, verslun og veitingar. Tjaldsvæðið er rétt við Hótel Húsafell.
Fossatún
Vinsæll og skemmtilegur staður, með fallegu umhverfi,stutt í fossa og gönguleiðir. Mikil afþreying fyrir börn og sannkallaður ævintýraheimur.
Hverinn, Kleppjárnsreykjum
Tjaldsvæðið býður uppá 80 til 100 stæði fyrir tjöld, húsbíla og aðra ferðavagna. Rafmagnstenglar með lekaleiða eru til staðar á 60 stæðum.
Notalegt og rólegt kjarri vaxið umhverfi með fjölbreyttri afþreyingu og þjónustu fyrir alla aldurshópa. Veitingastaður, tjaldsvæði og gróðurhús.
Varmaland
Tjaldsvæðið á Varmalandi er nálægt jarðhitasvæðinu í Stafholtstungum, á milli ánna Hvítár og Norðurár. Svæðið er rúmgott og friðsælt, hentugt fyrir fjölskyldur, með opnum svæðum, leiktækjum og plássi fyrir útileiki. Stutt ganga upp klettótta hæð fyrir ofan svæðið veitir fallegt útsýni yfir landslagið í kring og yfir Borgarfjörðinn. Aðeins 400 metra frá tjaldsvæðinu er Hótel Varmaland, þar sem gestir geta notið vandaðrar veitingaþjónustu, notalegs bar með fallegri verönd. Rétt við tjaldsvæðið er sundlaugin, sem opin er yfir sumarmánuðina. Fallegar gönguleiðir allt í kring og Borgarnes er skammt frá en þar er að finna matvöruverslanir, verslanir, eldsneyti og aðra þjónustu. Tjaldsvæðið á Varmalandi er fjölskylduvænt svæði og gestir eru beðnir um að virða rósemd staðarins. Akstur innan tjaldsvæðisins skal haldast í lágmarki. Lágmarksaldur til að gista á tjaldsvæðinu er 25 ár.
Selskógur, Skorradalur
Rólegt og skjólsælt tjaldsvæði við Skorradalsvatn. Mjög vinsælt hjá þeim sem vilja næði og náttúru.
Flottar gönguleiðir er að finna á svæðinu ásamt allri helstu aðstöðu.