Velferðarnefnd Borgarbyggðar
170. fundur
14. apríl 2026 kl. 14:00 - 15:30
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Guðveig Eyglóardóttir - formaður
Kristín Erla Guðmundsdóttir - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - aðalmaður
Eva Margrét Jónudóttir - aðalmaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varamaður
Starfsmenn
Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Fundargerð ritaði: Erla Björg Kristjánsdóttir - félagsmálastjóri
Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2026
2601286
Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
2. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148
Lagt fram drög að viðauka við samþykktir sveitarfélagsins vegna fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Vesturlands samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Velferðarnefnd samþykkir samhljóða viðauka við samþykktir sveitarfélagsins og vísar til staðfestingar sveitastjórnar.
3. Verklagsreglur barnavernd
2604054
Lagt til kynningar drög að verklagsreglum barnaverndarþjónustu Vesturlands varðandi eftirlit með börnum í fóstri. Verklagsreglur þessar um eftirlit með börnum í fóstri byggja á barnaverndarlögum nr. 80/2002, reglugerð um fóstur nr. 804/2004 og handbók um vinnslu barnaverndarmála frá Barna- og fjölskyldustofu. Einnig er byggt á samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. Verklagsreglurnar taka mið af réttindum barns, faglegum viðmiðum og þeirri meginreglu að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir að leiðarljósi. Þær gilda um eftirlit með öllum börnum sem Barnaverndarþjónustan hefur ráðstafað í fóstur, óháð því hvar fósturheimili er staðsett. Þær taka til undirbúnings eftirlits, framkvæmdar heimsókna, samtals við barn, skráningar, faglegs mats, viðbragða við áhyggjum og endurskoðunar fósturráðstöfunar þegar þess gerist þörf.
Velferðarnefnd telur mikilvægt að barnaverndarþjónustur framfylgi eftirlitskyldu sinni af fagmennsku þegar kemur að börnum sem ráðstafað er í fóstur. Nefndin staðfestir framsettar reglur og fagnar því að Borgarbyggð sé með skýrar verklagsreglur þegar kemur að barnaverndarmálum.
4. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148
Samhliða umdirbúningi að stofnun barnaverndarþjónustu Vesturlands hefur verið komið á fót sameiginlegri bakvakt fyrir Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Byggðasamlag Snæfellinga. Frá og með 1. maí 2025 hefur verið rekin sameiginleg bakvakt fyrir öll þessi sveitarfélög. Meðfylgjandi er minnisblað er snýr að breyttu greiðslufyrirkomulagi.
Velferðarnefnd telur nauðsynlegt að greiðslur vegna bakvakta hjá barnaverndarþjónustu Vesturlands taki mið af kjarasamningum, af því gefnu að öll þau sveitarfélög er standa að þjónustunni samþykki slíkar breytingar. Nefndin felur byggðarráði afgreiðslu á málinu.
5. Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu
2603073
Fundargerð samráðshóps stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi frá dags. 25.03.26 lögð fram.
Lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:30