Fræðslunefnd Borgarbyggðar

251. fundur

19. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ragnhildur Eva Jónsdóttir - aðalmaður
Guðveig Eyglóardóttir - formaður
Bjarni Þór Traustason - aðalmaður
Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir - aðalmaður
Sigrún Ólafsdóttir - varamaður

Starfsmenn

Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Hlöðver Ingi Gunnarsson - sviðsstjóri


Dagskrá

1. Skóladagatöl fyrir leik-, grunn- og listaskóla Borgarbyggðar
2501033

Kynnt fyrir fræðslunefnd skóladagatöl í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2026-2027. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.

Umræða um fyrirkomulag skóladagatal. Fræðslunefnd leggur til að fimm skipulagsdagar séu samrýmdir á milli leik-, grunn- og listaskóla. Unnið sé að skóladagatölum fyrir næstu 4-5 ár og einnig að eitt vetrarfrí verði í lok október fyrir grunnskóla.



Samþykkt samhljóða.



2. Útboð á skóla- og tómstundaakstri fyrir skólaárið 2026-2027
2509087

Drög kynnt að úboði á skólaakstri fyrir skólaárið 2026-2027. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.

Lagt fram til kynningar.



3. Ósk um breytingu á upptökusvæði skóla.
2601091

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.

Fræðslunefnd tekur vel í erindið en vísar því til umsagnar í skólaráði Grunnskóla Borgarfjarðar.



Samþykkt samhljóða.



4. Ósk um tómstundaakstur
2601255

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað.

Lagt til að erindið verið ekki samþykkt að sinni með vísað í að ekki sé gert ráð fyrir viðbótar akstri í fjárhagsáætlun en málinu vísað inní vinnu hóps um aukna þáttöku barna í Íþróttum sem KPMG vinnur með Borgarbyggð.



Samþykkt samhljóða.



5. UMSB - samstarfssamningur
2409322

Framhald á umræðu á síðasta fundi fræðslunefndar.

Umræður um stöðuna á viðræðum við UMSB.



Unnið hefur verið að því frá síðasta hausti að ná samningi við UMSB á grunni íþróttastefnu Borgarbyggðar sem samþykkt var í sveitarstjórn. Fræðslunefnd hefur áhyggjur af því að ekki hafi tekist að klára þann samning sem nefndinni var kynntur í haust. Fræðslunefnd leggur áherslur á að þau markmið sem koma fram í stefnunni og samningsdrögum verði framfylgt með samningnum við UMSB. Ef ekki verður komin fram tillaga frá samninganefnd UMSB sem Borgarbyggð getur tekið afstöðu til fyrir næstu mánaðamót leggur fræðslunefnd til að leitað verði annarra leiða með íþróttafélögunum til að framfylgja markmiðum íþróttastefnu Borgarbyggðar þannig að það fjármagn sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun nýtist íþróttahreyfingunni



Samþykkt samhljóða.



6. Umsókn um auka skipulagsdag
2602148

Lagt fram beiðni frá Ugluklett um viðbótar skipulagsdag.

Fræðslunefnd samþykkir að Ugluklettur fái viðbóta skipulagsdag. Mikilvægt er að skólinn upplýsi foreldra um niðurstöðuna og breyti skóladagatali í samræmi við það.



Samþykkt samhljóða.



Fundi slitið - kl. 18:00