Dagskrá
1. Útboð á hýsingu, kerfisrekstri og notendaþjónustu tæknilegra innviða
2510364
Framlögð drög að gögnum vegna útboðs á hýsingu og rekstri upplýsingatækniumhverfis Borgarbyggðar, auk notendaþjónustu. Til fundarins kemur Þórunn Unnur Birgisdóttir verkefnastjóri á fjármála- og stjórnsýslusviði.
Framlögð drög að útboðsgögnum og felur byggðarráð sveitarstjóra að fullvinna framlögð drög og láta fara fram útboð á grundvelli þeirra.
Samþykkt samhljóða.
2. Stjórnsýslukæra Sólar til framtíðar nr2
2602046
Framlögð stjórnsýslukæra Sólar til frmtíðar sem send hefur verið Innviðaráðuneytinu þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 15. janúar 2026 um að hafna beiðni kærenda um að fram fari söfnun undirskrifta vegna samþykktar sveitarfélagsins á aðalskipulagi Borgarbyggðar.
Framlögð stjórnsýslukæra og bréf innviðaráðuneytisins til sveitarfélagsins dags. 5. febrúar þar sem tilkynnt er um kæruna. Sveitarstjóra falið að taka saman greinargerð í samræmi við beiðni ráðuneytisins.
Samþykkt samhljóða.
Kristján Rafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
3. Starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar
2602109
Farið yfir starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar. Kynnt yfirlit yfir verkefni slökkviliðsins 2025, umsögn slökkviliðsstjóra um úttektarskýrslu HMS lögð fram og farið yfir horfur árið 2026. Til fundarins kemur Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri situr undir þessum dagskrárlið..
Byggðarráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir góða yfirferð á starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar árið 2025. Samtals voru útköll slökkviliðsins 42 á árinu. Haldnar voru 32 æfingar þar sem tekið var fyrir allt sem varðar brunavarnir, slökkvistarf og björgun fólks úr bílflökum og brennandi húsum. Þá sinnti slökkviliðið fjölda skoðana og veitti leyfi og umsagnir, samtals komu 227 slökkvitæki til skoðunar og eldvarnareftirliti var sinnt. Markmið slökkviliðsins er að leggja ríkari áherslu á eldvarnareftirlit á árinu 2026.
Tveir nýir slökkvibílar bættust í flota slökkviliðsins á árinu og mikil endurnýjun varð á smærri búnaði. Þá var gengið frá langtímaleigusamningi á húsnæði fyrir 280 fm slökkvistöð á Hvanneyri sem er bylting í húsnæði og aðbúnaði. Samtals bættust 17 nýir slökkviliðsmenn í hópinn í lok árs og er hópurinn nú í nýliðaþjálfun og við nám í slökkviliðsfræðum. Unnið er að endurbótum á húsnæði slökkviliðsins í Reykholti.
Á fundi byggðarráðs nr. 732 var lögð fram úttekt HMS á Slökkviliði Borgarbyggðar. Í niðurstöðu úttektarinnar kemur fram að tvö af 31 úttektaratriðum eru metin óásættanleg af HMS. Þau snúa að brunavarnaáætlun og eldvarnareftirliti. Í umsögn slökkviliðsstjóra er greind raunstaða þeirra atriða sem HMS metur óásættanleg, farið yfir forsendur úttektarinnar, lögð fram úrbótaáætlun og dreginn fram sá árangur sem náðst hefur í starfsemi slökkviliðsins. Í umsögn slökkviliðsstjóra kemur fram að gert er ráð fyrir að brunavarnaáætlun fari á fullt skrið á vormánuðum. Þá er bent á að niðurstaða HMS er varðar eldvarnaeftirlit byggir fyrst og fremst á skorti á skráningu, yfirsýn og formlegri skoðunaráætlun í gagnagrunninum Brunaverði sem er rafrænt kerfi opið HMS. Eldvarnaeftirliti hefur hins vegar verið sinnt að töluverðu leyti en ekki skráð og unnið í gegnum Brunavörð heldur í öðru kerfi. Úttekt HMS gefur því ekki fulla mynd af stöðu eftirlitsins. Skráning í Brunavörð hefur verið sett í réttan farveg. Ljóst er hins vegar að áfram þarf að vinna að því að efla eldvarnareftirlit í Borgarbyggð. Slökkvilið Borgarbyggðar er eitt hið öflugasta á landinu og skýrsla HMS undirstrikar þá staðreynd. Byggðarráð styður úrbótaáætlun slökkviliðsstjóra en hefur væntingar til þess styrkja megi eldvarnareftirlit á þessu og næsta ári án þess að auka þurfi verulega fjárveitingar í málaflokkinn.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
4. Egilsgata 11 - lóðamál
2004149
Kynnt staða samtals við eigendur Hótel Borgarness vegna lóðamála sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 732 og framlagt minnisblað sveitarstjóra.
Byggðarráð styður það upplegg sem fram kemur í minnisblaðinu og felur sveitarstjóra kanna hvort ljúka megi málinu á þeim nótum.
Samþykkt samhljóða.
5. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105
Farið yfir uppfærða áætlun um greiðsluflæði og afhendingu nýs fjölnota íþróttahúss - knatthúss í Borgarnesi. Til fundarins koma Sæmundur Óskarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hlynur Ólafsson verkefnisstjóri framkvæmda og Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri.
Uppfærð greiðsluáætlun ásamt áætlun um viðbótarverk framlögð. Vinna við fjölnota íþróttahús - knatthús gengur vel og hraðar heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir að húsið verði afhent 1. júní næst komandi eða þremur mánuðum fyrr en áætlað hafði verið í upphafi verks. Samningsverð með verðbótum stendur nú í um 1.777 m.kr. Byggingarnefnd hússins hafði samþykkt fyrir sitt leyti viðbótarverk að fjárhæð um 92 m.kr. Vegna þess að verkið hefur unnist hratt féll stærri hluti kostnaðar inn á árið 2025 heldur en gert var ráð fyrir og mun það hafa áhrif á framkvæmdaáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra falið að leggja mat á áhrifin í viðauka við fjárfestingaráætlun.
Samþykkt samhljóða.
6. Ugluklettur - Stækkun
2212062
Ugluklettur - Áfangaskipting
Lögð fram minnisblöð starfsmanna um framkvæmdasvæði vegna nýframkvæmdar við stækkun Uglukletts og verkaskiptingu vegna 1. og 2. áfanga og bréf. Einnig lagt fram bréf leikskólastjóra Uglukletts um mikilvægi þess að framkvæmdir verði ekki aðskildar. Nú stendur yfir útboð á 1. áfanga en í 2. áfanga verður hluti eldri byggingar endurskipulagður. Byggðarráð felur sveitarstjóra að halda áfram greiningu og gagnaöflun vegna áfanga 2 með það að markmiði að sá áfangi vinnist í framhaldinu.
Samþykkt samhljóða.
Sæmundur Óskarsson og Hlynur Ólafsson fóru af fundi.
7. Félagslegt leiguhúsnæði
1810002
Farið yfir samtal við Brák um samstarf vegna eignarhalds- og rekstrar á félagslegu leiguhúsnæði í samstarfi við Borgarbyggð. Til fundarins koma undir þessum dagskrárlið Hlöðveri Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Erla Björg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri.
Málið kynnt og samtal tekið um fjárhagslegar forsendur. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi og nýsamþykkta stefnu um félagslegt leiguhúsnæði.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
8. Uppbygging í Borgarbyggð - kynningar- og markaðsmál
2501129
Kynning á nýjum úthlutunarvef fyrir lóðir í Borgarbyggð.
Nýr markaðs- og lóðavefur Borgarbyggðar kynntur fyrir byggðarráði. Til fundarins kemur Þórður Magnússon framkvæmdastjóri Onno í gegnum fjarfundarbúnað. Byggðarráð felur sveitarstjóra að setja vefinn í loftið en undirliggjandi lóðir munu verða lagðar undir vefinn til úthlutunar jafnóðum og þær verða tilbúnar.
Samþykkt samhljóða.
9. Styrktarsjóður EBÍ-umsóknarfrestur til febrúarloka 2026
2601254
Lögð fram hugmynd að umsókn í styrktarsjóð EBÍ.
Byggðarráð tekur vel í hugmyndina og felur sveitarstjóra að fullvinna og senda fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
10. Áform um breytingar á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum
2602116
Rætt um áformaða lagasetningu um breytingar á eftirliti með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.
Á vettvangi sveitarstjórnar, byggðarráðs og umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar hefur fyrirhuguð lagasetning verið til umræðu. Frumvarpið felur í sér að reglubundið eftirlit, sem nú er á vegum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga, verði fært til Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar. Mikil hætta er að sú breyting grafi undan staðbundinni þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan sveitarfélaga. Hætt er við að þjónusta verði fjarlæg samhliða því sem hún verður miðlæg og að afgreiðsla mála verði tímafrekari. Þá verður ekki hjá því litið að um mjög mikilvæg sérfæðistörf er að ræða fyrir landshlutann. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sendu umsögn í samráðsgátt um málið og tekur byggðarráð heils hugar undir þá umsögn.
Samþykkt samhljóða.
11. LED-væðing í Borgarbyggð 2026
2602090
Við fjárhagsáætlun 2026 var ákveðið að ráðast átak í LED-væðingu í sveitarfélaginu. Sóley Birna Baldursdóttir rekstrarstjóri áhaldahúss og Sæmundur Óskarsson koma til fundarins undir þessum dagskrárlið og kynna stöðu verkefnisins, áherslur og forgangsröðun.
Farið yfir þá endurnýjun sem átt hefur sér stað í lýsingu í Borgarbyggð síðustu misseri. Kynnt áætlun um endurnýjun ársins.
Sveitarstjóra falið að vinna frétt um yfirstandi átak í LED-væðingu og birta á heimasíðu sveitarfélagsins íbúum til upplýsingar.
Samþykkt samhljóða.
12. Samtal við Veitur vegna hitaveitu, framkvæmda ofl.
2602156
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, Nanna Kristín Tryggvadóttir, deildarstjóri viðskiptatengsla, og Jón Tryggvi Guðmundsson hjá Veitum koma á fund byggðarráðs. Samtal um breytingar á gjaldskrá hitaveitu, gjaldskrár félagsins almennt, framkvæmdir og fleira.
Byggðarráð þakkar fulltrúum Veitna fyrir gott samtal og upplýsandi kynningu.
13. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
2601241
Farið yfir áform um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026.
Lagðir fram tveir lánasamningar vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að, annars vegar samtals útgreiðslufjárhæð kr. 650.000.000,- og hins vegar samtals að útgreiðslufjárhæð kr. 250.000.000,-.
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir að vísa til staðfestingar hjá sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 250.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 291.578.679,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.
Einnig samþykkir byggðarráð Borgarbyggðar að vísa til staðfestingar í sveitarstjórn að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 650.000.000,- með lokagjalddaga þann 4. desember 2033 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem byggðarráð hefur kynnt sér.
Til tryggingar lánunum, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánin eru tekið til að fjármagna byggingu fjölnota íþróttahúss - knatthús í Borgarnesi. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649 veitt fullt og ótakmarkað umboð að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Borgarbyggðar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Lánasjóður hefur ennfremur samþykkt beiðni Borgarbyggðar um stækkun á lánaramma að fjárhæð 1.950 m.kr. vegna ársins 2026. Byggðarráð samþykkir að hefja lántöku í samræmi við þann ramma til að fjármagna yfirstandandi framkvæmdaverkefni og verkefni ársins.
Samþykkt samhljóða.
14. Eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur 14. nóv 2025
2511042
Framlögð fundargerð eigendafundar Orkuveitu Reykjavíkur dags. 14. nóv. 2025.
Framlagt.
Fylgiskjöl
15. Erindi frá Brákarbraut 19 vegna Brákareyjar
2602023
Framlagt svar lögmanns Borgarbyggðar við bréfi lögmanns Brákarbrautar 19 um málefni er varða fyrirhugaðar framkvæmdir í Brákarey og lagt var fram á 734. fundi byggðarráðs.
Framlagt.
16. Aðalfundur Veiðifélags Álftár á Mýrum 2026
2602142
Framlagt aðalfundarboð stjórnar veiðifélags Álftár á Mýrum sem haldinn verður laugardaginn 28.febrúar 2026 kl.14 í félagsheimilinu Lyngbrekku.
Fundarboð framlagt. Í samræmi við samþykktir Borgarbyggðar þá kemur í hlut formanna fjallskilanefnda að mæta á aðalfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl
17. Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
2602149
Lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins dags. 12. febrúar 2026 þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra 14. nóvember sl. að verða við beiðni Landsnets um skipun nefndarinnar.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Davíð Sigurðsson sem fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd Holtavörðuheiðarlínu 1 og sveitarstjóra falið að senda tilkynningu til ráðuneytisins þar að lútandi.
Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
18. Fundarboð umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þri 3. mars.
2602145
Framlagt fundarboð umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna fundar sem haldinn verður þriðjudaginn 3. mars 2026 þar sem fjallað verður um Samgönguáætlun, 322. mál
Fundarboð framlagt.
19. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023
Lagt fram uppfært minnisblað vegna fjölda flóttafólks á fjárhagsaðstoð og kostnað sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar. Minnisblaðið tekið saman að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins en í undirbúningi er fundur með ráðherra vegna málsins. Einnig lagt fram svarbréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við erindi Borgarbyggðar dags. 23. des. 2025 sem tekið var til umfjöllunar og afgreiðslu fundi ráðgjafafanefndar Jöfnunarsjóðs þann 30. janúar 2026.
Minnisblað framlagt. Þar kemur fram að áfram fækkar smám saman í hópi flóttafólks á fjárhagaðstoð sveitarfélagsins. Samtals eru þau nú um 75 talsins. Samtals námu greiðslur sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar til flóttafólks sem verið hefur lengur en tvö ár á Íslandi um 117 m.kr. á árinu 2025. Sá kostnaður mun koma fram í rekstrarniðurstöðu ársins.
Félags- og húsnæðisráðherra hefur orðið við beiðni Borgarbyggðar um fund vegna málsins og verður sá fundur 5. mars næst komandi.
Fylgiskjöl
20. Fjarskiptasamband í Borgarbyggð
2501076
Kynnt staða vinnu sem miðast að endurbótum á fjarskiptasambandi í Hítardal og við Grjótárvatn.
Borgarbyggð er umhugað um að ráðist verði í umbætur á fjarskiptasambandi á við Grjótárvatn, í Hítardal og ekki væri lakara ef þær umbætur styrktu samband á Mýrum og í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Neyðarlínan hefur að beiðni Borgarbyggðar unnið minnisblað sem hefur það að markmiði að útlista bestu útfærslu að bættu fjarskiptasambandi við Grjótárvatn og í Hítardal ásamt grófu kostnaðarmati. Í samræmi í samræmi við afgreiðslu 730. fundar byggðarráðs hefur verið send ósk um tillögur til innviðafélaga um grundvöll þess að fjarskiptabúnaður sem vísað er til í minnisblaðinu verði settur upp við fyrsta tækifæri. Gert er ráð fyrir að tillögur berist eigi síðar en 3. mars og þær verði lagðar fyrir byggðarráð.
Samþykkt samhljóða.