Byggðarráð Borgarbyggðar

732. fundur

22. janúar 2026 kl. 08:15 - 11:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Framlögð tillaga að viðauka I við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026.

Tillagan felur í sér hækkun á rekstrarkostnaði vegna raflýsingar i átt til Einkunna að fjárhæð kr. 300.000 kr. Þá felur tillagan í sér hækkun á framkvæmda- og fjárfestingaráætlun um 1.200.000 vegna uppsetningar á biðskýli á Hvanneyri.



Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.



2. Endurheimt Hítarár - erindi til Borgarbyggðar
2510203

Framlagt minnisblað frá Jónatani Hróbjartssyni lögmanni til Ólafs Sigvaldasonar, Finnboga Leifssonar og Borgarbyggðar um lagalega stöðu landeigenda við Hítará í samræmi við afgreiðslu á fundum byggðarráðs nr. 724 og 726.

Minnisblaðið fjallar um réttarstöðu landeigenda í framhaldi af breytingum á farvegi Hítarár sem orsakaðist af skriðu sem féll úr Fagraskógarfjalli 2018. Borgarbyggð er eigandi lands við Hítará, sem varð fyrir áhrifum skriðunnar, og á þeim grunni varð Borgarbyggð við beiðni tveggja annarra landeigenda um þátttöku í gerð minnisblaðsins. Því hefur einnig verið komið til stjórnar Veiðifélags Hítarár.

Byggðarráð telur mikilvægt að landeigendur við Hítará komi saman til að ræða þau sjónarmið sem uppi eru og lúta að framtíð lífríkis Hítarár.



Samþykkt samhljóða.



3. Samstarfssamningar um hátíðir 2026
2601123

Framlagðar umsóknir um stuðning á grundvelli reglna samstarfssamninga við hátíðir í Borgarbyggð 2026. Til fundarins kemur Þórunn Kjartansdóttir deildarstjóri menningarmála hjá Borgarbyggð.

Framlagðar þrjár umsóknir um samstarfssamning vegna hátíða 2026. Allar þrjár uppfylla reglur um samstarfssamninga vegna hátíða og felur byggðarráð sveitarstjóra að gera samning við umsækjendur vegna eftirfarandi hátíða og leggja fyrir byggðarráð: Reykholtshátíð, Brákarhátíð og Hvanneyrardagar.



Samþykkt samhljóða.



4. Samskipti við Veitur vegna vatnsveitu á Varmalandi
2405162

Framlagt minnisblað frá Veitum um stöðu vatnsveitumála á Varmalandsveitu.

Í samræmi við afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 731 er hafin vinna við að leggja mat á endurnýjunarþörf dreifikerfis Vatnsveitu Varmalands og möguleika á frekari vatnsöflun, ásamt því sem rekstrarforsendur verða skoðaðar. Minnisblað Veitna er hluti af þeirri vinnu. Þá hefur verið fundað með Veitum, Heilbrigðiseftirliti og Slökkviliði en markmið aðila er að tryggja gæði og öryggi vatns á Varmalandsveitu. Hjá Veitum hefur komið fram að búið er að undirrita samning um leyfi til rannsókna við Hvassafell í Norðurárdal og stendur til að hefjast handa við tilraunaboranir í vor. Þá verður komið fyrir tilraunabúnaði við síur á vatni úr Grábrókarhrauni og byrjað að endurnýja lagnir.

Byggðarráð fagnar að Veitur hafi tekið mikilvæg skref til að tryggja framboð og gæði á fersku vatni í vaxandi sveitarfélagi. Byggðarráð leggur áfram til að hafa í forgangi að skoða ný tækifæri til vatnsöflunar nærri veitukerfi Vatnsveitu Varmalands.



Samþykkt samhljóða.



5. Egilsgata 11 - lóðamál
2004149

Farið yfir stöðu samtals við eigendur Hótel Borgarness vegna lóðamála.

Sveitarstjóra falið að vinna áfram í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða.



6. Gjaldskrár 2026
2510200

Framlögð tillaga að gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð.

Byggðarráð samþykkir að vísa gjaldskrá fyrir félagsheimili í Borgarbyggð til sveitarstjórnar. Gjaldskráin felur í hækkun sem samsvarar 3,2% á milli ára.



Samþykkt samhljóða.



7. Úttekt HMS á Slökkviliði Borgarbyggðar
2601114

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun framkvæmdi úttekt á Slökkvliði Borgarbyggðar 29. október 2025. Framlögð úttektarskýrsla og fulltrúar HMS, þau Bjarni Höskuldsson og Helga Einarsdóttir, kynna niðurstöður í gegnum fjarfundarbúnað. Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri kemur einnig til fundarins.

Framlagt og sveitarstjóra falið að rýna efni úttektarinnar, vinna að úrbótum þar sem tilefni er til og koma athugsemdum á framfæri í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða.



Heiðar Örn Jónsson sat fundinn framan af þessum dagskrárlið en fór af fundi nokkru áður en umræðu var lokið.



8. Fundargerðir Faxaflóahafna sf - 2025.
2504239

framlögð fundargerð 263. fundar stjórnar Faxaflóahafna sem fram fór 12. desember 2025.

Fundargerð framlögð.



9. Þjónustukönnun sveitarfélaga 2025
2509104

Lagðar fram til kynningar niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd er árlega meðal íbúa stærstu sveitarfélaga landsins.

Lagt fram.



Fundi slitið - kl. 11:30