Byggðarráð Borgarbyggðar

728. fundur

27. nóvember 2025 kl. 08:15 - 12:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir boðaði forföll og Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2026
2505064

Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2026 sem lögð verður fram til seinni umræðu í sveitarstjórn 11. desember n.k. Til fundarins koma Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri og Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri.

Farið yfir vinnu við rekstraráætlun og fjárfestingaráætlun. Rædd fjárfestingaráætlun slökkviliðs og íþróttamannvirkja. Farið yfir liði í rekstraráætlun grunnskóla, íþróttamannvirkja og fjármagnskostnaði. Kynnt drög að mati á áhrifum þess að ljúka framkvæmd við nýtt íþróttahús árið 2028 í stað 2029.



Heiðar Örn Jónsson sat fundinn meðan fjárfestingaráætlun slökkviliðs var til umræðu.



Eiríkur Ólafsson fór af fundi.



2. Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
2511022

Í samræmi við afgreiðslu á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 727 mæta fulltrúar Sólar til framtíðar á fundinn; Guðbrandur Brynjúlfsson, Jón Björn Blöndal, Margrét Guðjónsdóttir, Eyrún Baldursdóttir og Guðrún Sigurjónsdóttir.

Byggðarráð þakkar gestunum fyrir þeirra innlegg á fundinum og gagnleg skoðanaskipti um málið. Byggðarráð áréttar að byggðarráð og gestir voru sammála um að í ljósi þeirra álitaefna sem rædd voru á fundinum muni ákvörðun um hvort undirskriftasöfnun hefjist þurfa lengri tíma en þá 28 daga sem mælt er fyrir um í reglugerð nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum.

Byggðarráð telur vera tilefni til að árétta að í samantekt athugasemda við auglýsta tillögu að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 koma fram viðbrögð sveitarstjórnar við öllum umsögnum. Þar er m.a. ítrekað að engin vindorkuver eru heimiluð í aðalskipulagi Borgarbyggðar.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda nánari skýringar og leiðbeiningar til ábyrgðarmanna undirskriftasöfnunarinnar.

Afgreiðslu málsins er frestað þar til frekari afstaða berst frá ábyrgðarmönnum undirskriftasöfnunar en lagt er upp með að afgreiða erindið á sveitarstjórnarfundi 11. desember nk.



Samþykkt samhljóða.



3. UMSB - samstarfssamningur
2409322

Drög að samstarfssamningi milli Borgarbyggðar og UMSB lögð fram. Sonja Lind Eyglóardóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi kemur til fundarins undir þessum dagskrárlið.

Byggðarráð vísar drögum að samstarfssamningi við UMSB til umsagnar í fræðslunefnd og leggur fyrir sitt leyti til við sveitarstjórn að samþykkja framlögð drög að samningi og felur sveitarstjóra að gera ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum samningsins í fjárhagsáætlun 2026-2029.



Samþykkt samhljóða.



4. Vegurinn að Bjargi
2409048

Fyrir liggur vilji hjá sveitarstjórn um að ráðast í endurbætur á leið fyrir vegfarandur í átt að Bjargi. Farið yfir stöðu málsins og framlagt minnisblað sveitarstjóra.

Framlagt og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræðu á fundi.



Samþykkt samhljóða.



5. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023

Framlögð drög að III. viðauka við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytis og sveitarfélags um samræmda móttöku flóttafólks. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs kemur til fundarins og Heiðrún Halldórsdóttir verkefnastjóri í málefnum flóttamanna og situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja III. viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 180 einstaklingum í 140. Með þessari breytingu er dregið úr líkum á fjölgun flóttafólks umfram getu sveitarfélagsins og tryggt að eins miklu leyti og hægt er að fjármagn fylgi þeim sem kunna að flytjast á eigin vegum í sveitarfélagið.

Það er jafnframt nauðsynlegt að í öllum samskiptum vegna þessa máls sé vakin athygli og leitað lausna á þessari þungu stöðu sem Borgarbyggð er í vegna fjárhagsaðstoðar. Samhliða samþykkt verði óskað eftir frekari aðgerðum af hálfu ráðuneyta og stofnana ríkisins til að leysa málið og leiðrétta fjárhagsleg áhrif sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir.



Samþykkt samhljóða.



6. Gjaldskrár 2026
2510200

Farið yfir tillögur að gjaldskrám 2026.

Framlagðar gjaldskrár fjölskyldsviðs, Hjálmakletts, slökkviliðs, Ljósleiðara og safnahúss. Jafnframt lögð fram tillaga að óbreyttu álagningarhlutfalli fasteignaskatts og lóðarleigu á milli ára.



Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.



7. Erindi frá Golfklúbbi Borgarness um uppbyggingu klúbbhúss
2511296

Framlagt erindi frá Golfklúbbi Borgarness þar sem óskað er eftir rými í fjárhagsáætlun næstu ára fyrir uppbyggingu á klúbbhúsi fyrir Golfklúbb Borgarness.

Í samræmi við fyrri ákvarðanir byggðarráðs þá er lagt til að lokið verði við sölu á Hamarsbænum og við þá sölu skapast svigrúm til að ráðstafa fjármagni til uppbyggingar aðstöðu fyrir kylfinga að Hamri. Byggðarráð leggur til að fjárfestingaráætlun 2026-2029 verði uppfærð með hliðsjón af því.



Samþykkt samhljóða.



8. Leigusamningur um land fyrir golfvöll að Hamri
2511138

Framlögð drög að nýjum leigusamningi við Golfklúbb Borgarness um land fyrir golfvöll að jörðinni Hamri.

Framlagt og sveitarstjóra falið að óska eftir fundi forsvarsmanna Golfklúbbsins með byggðarráði.



Samþykkt samhljóða.



9. Fjölnota íþróttahús - Knatthús
2303105

Framlagt minnisblað um búnað í fjölnota íþróttahúsi - knatthúsi sem fjallar m.a. um tjöld og lit á tartani eftir uppfærslu teikninga. Fjallað um lausan búnað fyrir húsið sem ekki er innifalinn í tilboði Ístaks.

Byggðarráð leggur til við byggingarnefnd að gera ráð fyrir kaupum á lausum búnaði en að fallið verði frá tillögu að kaupum að tjöldum eða litabreytingum á hlaupabraut.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að gera ráð fyrir í fjárfestingaráætlun 2026.



Samþykkt samhljóða.



Thelma Harðardóttir fór af fundi.



10. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2025
2503097

framlögð fundargerð 199.fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 17.11.2025.

Framlagt.

Fylgiskjöl


11. Fundargerðir Faxaflóahafna sf - 2025.
2504239

Framlagðar fundargerðir stjórnar Faxaflóahafna frá fundum nr.259.260.261.262.

Fundargerðir framlagðar.

Fylgiskjöl


12. Kvörtun vegna stjórnsýslu_ IRN25100088
2511043

Framlögð umsögn Borgarbyggðar til innviðaráðuneytisins vegna erindis sem ráðuneytinu barst vegna meintrar ólögmætrar stjórnsýslu. Guðveig Lind Eyglóardóttir og Kristján Rafn Sigurðsson fóru af fundi.

Framlögð drög að umsögn og sveitarstjóra falið að fullvinna og senda til ráðuneytisins.





Fundi slitið - kl. 12:00