Byggðarráð Borgarbyggðar

727. fundur

20. nóvember 2025 kl. 08:15 - 11:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - formaður
Guðveig Eyglóardóttir - varaformaður
Thelma Dögg Harðardóttir - áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir boðaði forföll og Kristján Rafn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri
Lilja Björg Ágústsdóttir - Sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Broddi Guðjónsson - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2026
2505064

Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun 2026.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja til breytingu á fjárfestingaráætlun sem felur í sér að framkvæmdum við stækkun íþróttahúss verði flýtt þannig að þeim verði lokið á árinu 2028. Áhrif þeirrar breytingar verði kynnt á næsta fundi byggðarráðs.



Samþykkt samhljóða.



2. Gjaldskrá og rekstraráætlun Sorpurðunar Vesturlands 2026
2511127

Framlögð rekstraráætlun fyrir Sorpurðun Vesturlands 2025 - 2027 ásamt gjaldskrá fyrir árið 2026.

Sorpurðun Vesturlands er öflugt og arðbært hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi og er eignarhlutur Borgarbyggðar 23,5%. Sjóðstreymi frá rekstri er sterkt, félagið skuldlaust og býr að stærri sjóðstöðu en útlit er fyrir að rekstur og fjárfestingar kalli á. Ef ekki liggur fyrir ákvörðun um fjárfestingar í rekstrinum í samræmi við stefnu þá beinir byggðarráð því til stjórnar Sorpurðunar Vesturlands að skoða að greiða umfram eigið fé til eigenda og/eða móta stefnu í þá veruna.



Samþykkt samhljóða.



3. Umræða um stöðu leiðar 81
2511064

Framlagt minnisblað frá Vegagerðinni með tilkynningu til Borgarbyggðar og SSV þess efnis að rekstur leiðar 81 sé til endurskoðunar og útlit fyrir skerta þjónustu að leiðin verði lögð niður frá skólalokum 2026. Jafnframt lögð fram fundargerð fundar fulltrúa Vegagerðarinnar og Borgarbyggðar þar sem þessi áform voru tilkynnt sveitarfélaginu.

Byggðarráð ítrekar þau sjónarmið sem fram koma í afgreiðslu síðasta sveitarstjórnarfundar. Þessi skilaboð eru áfall. Borgarbyggð hefur unnið ötullega að því að efla almenningssamgöngur m.a. með stuðningi úr byggðaáætlun og sífellt fleiri treysta á leið 81. Nú er allri þeirri vinnu stefnt í uppnám.

Borgarbyggð er mjög víðfemt sveitarfélag sem orðið hefur til úr sameiningu 13 sveitarfélaga og íbúar og gestir treysta á samgöngur til að sækja nám, vinnu og þjónustu. Að skerða þjónustu og síðar leggja niður leið 81 setur stórt strik í reikning skóla, vinnustaða, íþrótta- og tómstundastarfs.

Byggðarráð Borgarbyggðar beinir því til Vegagerðarinnar og stjórnvalda að ákvörðun verði endurskoðuð og tryggt verði nægt fjármagn til að viðhalda þjónustu á leið 81.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


4. Beiðni um undirskriftasöfnun v. aðalskipulags
2511022

Beiðni um undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu skv. sveitarstjórnarlögum varðandi ákvörðun sveitarstjórnar frá fundi nr. 269 um að samþykkja endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 lögð fram.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að hafa samband við málsbeiðendur og boða þau á næsta fund byggðarráðs til að fara yfir stöðu málsins.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


5. Kvörtun vegna stjórnsýslu_ IRN25100088
2511043

Framlögð kvörtun vegna stjórnsýslu Borgarbyggðar í tengslum við málsmeðferð er varðar sveitarstjórnarfund nr. 270.

Framlagt og sveitarstjóra falið að taka saman gögn og umsögn í samræmi við beiðni innviðaráðuneytisins.



Samþykkt samhljóða.



Kristján Rafn Sigurðsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl


6. Beiðni um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 - Beiðni um umsögn
2507033

Framlagt svar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við beiðni Landsnets um að skipuð verði sérstök raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 í samræmi við 9. gr. a skipulagslaga, nr. 123/2010, sbr. lög nr. 35/2023.

Í svari ráðuneytisins kemur fram sú niðurstaða að fallast beri á beiðni Landsnets um skipan raflínunefndar fyrir Holtavörðuheiðarlínu 1.

Beiðni um stofnun raflínunefndar hefur ítrekað verið tekin fyrir á fundum byggðarráðs, t.d. nr. 714, og sveitarstjórnar Borgarbyggðar nr. 260 og er afstaðan óbreytt: Byggðarráð ítrekar bókun sveitarstjórnar frá sveitarstjórnarfundi nr. 260: "Fyrirhuguð Holtavörðuheiðarlína 1 mun liggja um fjögur sveitarfélög. Enginn ágreiningur er uppi um þjóðhagslegt mikilvægi línunnar og mikilvægi hennar til að auka raforkuöryggi í landinu. Fyrir samfélagið í heild er því til mikils að vinna ef hægt er að auka skilvirkni skipulagsferlisins án þess að það bitni á gæðum skipulagsvinnunnar. Innan sveitarfélaga eru skiptar skoðanir um æskilegt línustæði og ekki loku fyrir það skotið að ágreiningur muni vakna milli sveitarfélaga sömuleiðis. Því er æskilegt að skapaður sé farvegur til að ávarpa og greiða úr slíkum ágreiningi og tryggja sameiginlegan skilning. Fulltrúar sveitarfélaga í nefndinni fylgja enda stefnu sinna sveitarfélaga og gæti hagsmuna þeirra. Ekki er komin reynsla á skipan raflínunefnda. Það er von sveitarstjórnar að ef til þess kemur muni nefndin verða til þess að styrkja samtal Landsnets, ráðuneytis og sveitarfélaga sem vega muni fyllilega upp á móti þeim breytta farvegi skipulagsferlisins. Skipan raflínunefndar felur í sér eftirgjöf skipulagsvalds. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á raforkulögum síðustu ár hafa rýrt skipulagsvald sveitarfélaga gagnvart kerfisáætlun Landsnets. Sveitarstjórn Borgarbyggðar vekur athygli á því að línustæði Holtavörðuheiðarlínu hefur ekki endanlega verið ákveðið né staðfest og ekki lokið við samninga við landeigendur, auk þess hefur ekki verið til staðar ágreiningur milli sveitarfélaga, sem fyrirhuguð lína kemur til með að fara í gegnum eða milli sveitarfélaga og Landsnets. Af þeim ástæðum telur Sveitarstjórn Borgarbyggðar ekki tímabært að skipa raflínunefnd að svo stöddu."



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


7. Viljayfirlýsing um stóraukna loftslagsvæna atvinnustarfsemi á Grundartanga
2511131

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Elkem Ísland ehf., Þróunarfélag Grundartanga ehf. Orkuveita Reykjavíkur sef. ásamt dótturfélögunum Orku náttúrunnar ohf. og Carbfix hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stóraukna loftslagsvæna atvinnustarfsemi á Grundartanga. Viljayfirlýsingin framlögð.

Byggðarráð fagnar áformum um stóraukna uppbyggingu loftslagsvænnar starfsemi á Grundartanga. Mikil tækifæri eru til uppbyggingar á Grundartanga. Það er ánægjulegt að sjá mikla undirbúningsvinnu Þróunarfélags Grundartanga og samstarfsaðila bera ávöxt. Þessi áform geta haft veruleg áhrif á samfélagið í Borgarbyggð. Uppbygging á Grundartanga hvetur til fjölgunar íbúa í Borgarbyggð, leiðir beint og óbeint af sér fjölgun starfa og eykur fjölbreytni í atvinnulífi. Uppbygging á Grundartanga undirstrikar mikilvægi uppbyggingar innviða og þjónustu í Borgarbyggð.

Fylgiskjöl


8. Bílastæði við Kaupfélag Borgfirðinga
2511133

Farið yfir stöðu máls. Sæmundur Óskarsson starfandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætir til fundarins.

Staða málsins kynnt fyrir byggðarráði. Í samræmi við efni viljayfirlýsingar þarf að ljúka við samningsgerð við kaupfélagið.



9. Tilkynning um kæru nr. 122-2025, íbúðabyggð á Varmalandi
2507197

Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 122/2025 er varðar ákvörðun sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 8. maí 2025 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar að Varmalandi.

Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 122/2025. Byggðarráð leggur til við skipulags- og byggingarnefnd að auglýsa deiliskipulag fyrir íbúðabyggð á Varmalandi að nýju.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. Erindi frá ON til ÚUA um álit á leyfisskyldu v styrkingar jarðvegsstíflu við Andakílsárvirkjun
2510128

Framlagður úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamál dags. 10. nóvember sem er beiðni Orku náttúrunnar ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur um að úrskurðað verði um hvort tímabundin styrking jarðvegsstíflu við Andakílsárvirkjun sé háð framkvæmdaleyfi eða byggingarleyfi.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl


11. Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ
2511105

Framlagðar áskoranir og hvatningar nýliðins Sambandsþings UMFÍ til ríkis og sveitarfélaga.

Byggðarráð tekur undir áskoranir og hvatningar Sambandsþings. Þær fela í sér að efla lýðheilsu þjóðarinnar með þjóðarátaki og forvörnum með áherslu á að styrkja þátttöku og aðstöðu og að eiga samtal við íþróttahreyfinguna um starfsumhverfi hennar.

Sveitarstjórn hefur samþykkt nýja íþróttastefnu fyrir Borgarbyggð og í samræmi við hana verður starfsumhverfið leiðarstef í samstarfi sveitarfélagsins við íþróttahreyfinguna. Þá er fjárfesting í íþróttamannvirkjum í öndvegi í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins og nýtt fjölnota íþróttahús - knatthús verður tekið í notkun síðsumars 2026.

Ný íþróttastefna er liður í mótun á lýðheilsustefnu fyrir Borgarbyggð. Byggðarráð vísar til seinni umræðu um fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026 að tryggja fjármögnun til að ljúka við að móta lýðheilsustefnu í góðu samráði við íbúa.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


12. Umsagnarmál frá Alþingi 2025
2503085

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 237. mál - Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

Framlagt.

Fylgiskjöl


13. Umsagnarmál frá Alþingi 2025
2503085

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 175. mál - Innleiðing landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda.

Framlagt.

Fylgiskjöl


14. Umsagnarmál frá Alþingi 2025
2503085

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 229. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

Framlagt.

Fylgiskjöl


15. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2024.
2503101

Framlögð ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fyrir árið 2024.

Fylgiskjöl


16. Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
2501012

Framlögð fundargerð 986. fundar stjórnar Sambandsins frá 10. október 2025.

Framlagt.

Fylgiskjöl


17. Samband ísl. sveitarfélaga - fundargerðir 2025
2501012

Framlögð fundargerð 988. fundar stjórnar Sambandsins frá 31. október 2025.

Framlagt.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 11:00