Fundargerð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
271. fundur
13. nóvember 2025 kl. 16:00 - 19:00
Hjálmakletti
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Skýrsla sveitarstjóra
2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Hækkun fjárheimildar til annars vegar viðhalds gatna að fjárhæð 10,0 m.kr. og til viðhalds lóða að fjárhæð 2,3 m.kr. innan eignasjóðs. Fjárheimildin er annars vegar til að ráðast í endurbætur á því svæði sem tilheyrir atvinnusvæði við Melabraut á Hvanneyri og hins vegar endurbætur á bílastæði framan við slökkvistöðina við Sólbakka í Borgarnesi. Á móti þeim endurbótum er lagt til að viðhaldsliður í rekstri slökkviliðs verði lækkaður um 2,3 m.kr.
Þá er með viðaukanum uppfærð áætlun sem tengist breytingum á rauntölum 2024 og áætlunar sem var grunnur áætlunar 2025. Samtals eru áhrif þeirra á rekstraráætlun samstæðu jákvæð um 53,1 m.kr. sem skýrist af áhrifum samstarfsverkefna en um er að ræða reikningsleg áhrif af afskriftum og fjármagnsliðum. Vakin er athygli á því þessi liður hefur verið leiðréttur frá afgreiðslu byggðarráðs en í gögnum var villa er tengdist mati á afskriftum er tengjast eignarhlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum og tilheyra liðnum "samstarfsverkefni sveitarfélaga". Hrein áhrif á rekstrarniðurstöðu samstæðu af viðaukanum eru áætluð jákvæð um 43,1 m.kr.
Vísað er til sveitarstjórnar að gera þær beytingar á fjárfestingaráætlun að stofnaðir verði liðirnir Fráveita á Kleppjárnsreykjum og þar veitt fjárheimild að fjárhæð 45,0 m.kr. Bílastæði í Borgarnesi og þar veitt heimild að fjárhæð 5,1 m.kr. Þá verði hækkaður liðurinn Vallarás gatnaframkvæmdir um 11,0 m.kr. verði ákveðið að færa lagnir til að bæta þar með gæði atvinnulóða á svæðinu. Á móti færð 21,0 m.kr. til lækkunar á liðnum GBF á Kleppjárnsreykjum. Þessi lækkun tengist áðurnefndum endurbótum á fráveitu á Kleppjárnsreykjum m.a. sem tengist byggingum í eigu sveitarfélagsins. Brátt verður lokið við nýbyggingu við Grunnskóla Borgarfjarðar-Kleppjárnsreykjadeild og samhliða þeirri vinnu hefur verið farið í nauðsynlegar umbætur á fráveitu og brýnt að halda áfram þeirri vinnu. Þá er lækkaður rammi vegna stígagerðar í Borgarnesi um 28 m.kr.. Samanlögð áhrif eru til hækkunar á framkvæmdaáætlun um 12,0 m.kr.
Engin breyting er á áætluðum lántökum ársins en hækkun á handbæru fé A-hluta í árslok er áætluð 227,4 m.kr. og samstæðu 248,3 m.kr. sem skýrist að mestu af áðurnefndum breytingum á rauntölum 2024 og áætlun sem var grunnur áætlunar ársins 2025.
Sveitarstjórn samþykkir viðauka V við fjárhagsáætlun ársins 2025
Samþykkt samhljóða
3. Fjárhagsáætlun 2026
Drög að áætlun um rekstur 2026 og fjárfestingar 2026-2029 rædd og kynnt. Lagt til að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt milli ára 14,97%. Drögum að fjárhagsáætlun er vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn sem fram fer 13. nóvember næst komandi og í framhaldinu til kynningar í sveitarstjórn Skorradalshrepps.
Samþykkt samhljóða."
Rétt að vekja athygli á óvissu er tengist endurgreiðslum til ríkisins til sveitarfélagsins vegna fjárhagsaðstoðar við útlendinga. Í þessari fjárhagsáætlun er miðað við að endurgreiðslur fáist áfram. Verði það ekki raunin gætu aðrar rekstrartekjur orðið um 130 - 150 m.kr. lægri en ella og rekstrarniðurstaðan lakari sem því nemur.
Fjárfestingaráætlun ársins 2026 gerir ráð fyrir heildarfjárfestingu að fjárhæð 2,3 ma.kr. Stærstu verkefnin eru að ljúka við smíði á fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi og nýbygging við Ugluklett. M.v. fjárhagsáætlun 2026 munu heildareignir A-hluta Borgarbyggðar standa í 14,9 ma.kr. undir lok næsta árs. Bókfært eigið fé verður tæplega 6,6 ma.kr. og eiginfjárhlutfall því 44%. Heildarskuldir og skuldbindingar munu nema um 8,3 ma.kr.. M.v. fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram til fyrri umræðu mun skuldaviðmið Borgarbyggðar standa í um 64% við lok árs 2025 og í um 83% í árslok 2026 og verða vel innan og skynsamlegra og lögbundinna marka.
Davíð Sigurðsson, framsóknarflokki (B.lista) lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta sveitarstjórnar:
Framsóknarflokkurinn í Borgarbyggð hefur á yfirstandandi kjörtímabili lagt áherslu á ábyrga fjármálastjórn, bætta þjónustu við íbúa, uppbyggingu í leik- og grunnskólum, íþróttaaðstöðu, gatnagerð, göngustígum ásamt þvi að fara í endurbætur á búnaði og umgjörð á fjölmörgum starfsstöðvum sveitarfélagsins. Þá höfum við unnið að eflingu atvinnulífs m.a. með auknu framboði á atvinnulóðum.
Stórátak hefur verið gert í skipulagsmálum á kjörtímabilinu með það að markmiði að fjölga íbúðareinginum. En frá 2022 hafa verið skipulagðar 95 íbúða einingar við Fjóluklett og Kveldúlfshöfða, 20 nýjar íbúðir við Kveldúlfsgötu og Þórðargötu í skipulagi Dílatanga, 2 íbúðir við Kvíaholt, 11 einbýlishúsalóðir og fjölbýlishúsalóð á Varmalandi ásamt 44 atvinnulóðum við Vallarás. Á árinu 2026 er svo fyrirsjáanlegt að fjöldi nýrra lóða muni verðatilbúnar til uppbyggingar, svo sem við Vallarás, Birkiklett, Fjóluklett, Kveldúlfshöfða og í Flatahverfi á Hvanneyri.
Á yfirstandandi ári hefur verið framkvæmt gríðarlega mikið í innviðum, það var farið í gatnaframkvæmdir við Vallarás, nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarnesi reist, hönnunarvinna við stækkun leikskólans Ugluklett ásamt undirbúningi að nýju bílastæði við leikskólann, viðamiklar endurbætur miðálmu á Grunnskólanum í Borgarnesi, lýsingu á leið í Einkunnir, gatnaframkvæmdir við Sæunnargötu, lóðaframkvæmdir við Hraunborg á Varmalandi, nýbygging við grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, endurbætur á aðstöðu og búnaði í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi og í Safnahúsinu í Borgarnesi, endurbætur á aðstöðu og búnaði í félagsstarfi aldraðra, fráveituframkvæmdir á Kleppjárnsreykjum, stígagerð í Borgarnesi, endurbætur á Klettaborg og gerð sviðs í Skallagrímsgarði svo eitthvað sé nefnt.
Fjárfestingar Borgarbyggðar hafa verið í samræmi við þá áætlun sem Framsókn lagði upp með í upphafi kjörtímabilsins. Og hefur það endurspeglast í þeim áherslum sem hafa verið á fjárfestinga og framkvæmdaáætlun á yfirstandandi kjörtímabili eins og upptalning hér að framan sýnir fram á. Sú áætlun sem er hér lögð fram í dag endurspeglar áfram þær áherslur. Áfram er lögð áhersla á íþrótta- og æskulýðsmál, frekari þróun í skólamálum og að bætt verði í endurbætur á götum, götulýsingu og gangstéttum svo eitthvað sé nefnt.
Stærsta verkefni ársins 2026 er að ljúka við smíði á fjölnota íþróttahúsi í Borgarnesi. Næsta stórframkvæmd á vegum sveitarfélagsins er nýbygging við leikskólann Ugluklett. Undirbúningur gengur vel og gert ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin fyrir árslok. Áfram er gert ráð fyrir fjárfestingu í stígum og göngu- og hjólastígs að Hamri hluti af þeim áformum er í samstarfi við Vegagerðina. Ráðist verður í átak í götulýsingu og LED-væðingu verður hraðað. Áfram verður unnið að framkvæmdum á skólahúsnæði við GBF á Kleppjárnsreykjum og er gert ráð fyrir nýframkvæmdum á skólalóð næsta sumar. Áfram verður lögð áhersla á endurbætur á íþróttamiðstöðinni og endurnýjun á rennibraut í sundlauginni í Borgarnesi samhliða vinnu við undirbúning að stækkun hússins.
Áætlun 2026 gerir ráð fyrir gatnaframkvæmdum við bæði Vallarás og Fjóluklett/Kveldúlfshöfða í Bjargslandi og framboði á nýjum lóðum í framhaldinu. Endurbyggingu á Bröttugötu og gatnaframkvæmdir við Borgarbraut í samstarfi við HVE og FSRE, endurbótum á leið sem liggur að Bjargi.
í framkvæmdaáætlun er áfram gert ráð fyrir ramma fyrir uppbyggingu sameiginlegrar miðstöðvar viðbragðsaðila, lögreglu og slökkviliðs.
Þá endurspeglast í fjárhagsáætlun að hafist verður handa við að gera úrbætur á upplýsingatækniumhverfi sveitarfélagsins með samræmingu, hagkvæmni og öryggi í huga.
Á árinu 2025 er gert ráð fyrir lántöku allt að 2 milljörðum króna og jafnframt er gert ráð fyrir lántöku á árinu 2026, en það er eðlilegt að skuldir aukist svolítið þegar farið er í jafn miklar framkvæmdir á innviðum og raun ber vitni, þó ber að geta þess að á árunum 2022-2024 var greitt talsvert niður af skuldum sveitarfélagsins samhliða þeirri uppbyggingu sem farið var í og er sveitarfélagið því vel í stakk búið til að takast á við þessar framkvæmdir, gert er ráð fyrir að skuldahlutfall sveitarfélagsins verði 83% í lok árs 2026 en það er talsvert undir 150% viðmiði sveitarstjórnarlaga og verður sveitarfélagið því ekki í neinum skilningi skilgreint sem mikið skuldsett.
Lagt er til að álagning útsvars á árinu 2026 verði 14,97% af tekjum.
Samþykkt samhljóða
Sveitarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagsramma fyrir árin 2027-2029 til seinni umræðu í sveitarstjórn og til kynningar í sveitarstjórn Skorradalshrepps.
Samþykkt samhljóða
Til máls tóku: SBG, SG, DS og EÓT
4. Fjárhagsáætlun Skorradalshrepps 2026 - til kynningar
Samþykkt samhljóða
5. Þjónustustefna Borgarbyggðar 2026
Byggðarráð þakkar íbúum fyrir gott samtal og góðar ábendingar um þjónustustefnuna. Nú er unnið úr ábendingum og verður stefnan lögð fyrir næsta fund sveitarstjórnar til samþykktar. Íbúar geta áfram komið ábendingum á framfæri í gegnum borgarbyggd@borgarbyggd.is til 1. nóvember."
Samþykkt samhljóða
6. Umsókn um deiliskipulag - Baula
Samþykkt samhljóða
7. Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Samþykkt samhljóða
8. Brúartorg 6 - Umsókn um deiliskipulag
Samþykkt samhljóða
9. Umsögn-Sundabraut
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skrifa umsögn fyrir hönd Borgarbyggðar og leggja fyrir sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða."
Sveitarstjórn tekur heils hugar undir þau sjónarmið sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa og fagnar að kraftur hafi verið settur í Sundabraut. Matsskýrslan staðfestir að tilkoma Sundabrautar mun hafa mikil jákvæð áhrif á byggðaþróun og atvinnulíf í Borgarbyggð, á Vesturlandi og á landinu öllu.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar tekur undir ályktun Haustþings Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 29. október sl. um að mikilvægt er að nýta heimild í lögum um að Sundabraut verði samvinnuverkefni, og hún verði byggð upp í samræmi við áætlanir og undirritaða yfirlýsingu ríkis og borgar þar sem kemur fram að stefnt sé að því að framkvæmdir við Sundabraut geti hafist eigi síðar en 2026 og að brautin verði tekin í notkun árið 2031. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hvetur til að hagkvæmasti kostur verði valinn svo framkvæmdin geti hafist sem fyrst.
Samþykkt samhljóða
10. Eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur 14. nóv 2025
Samþykkt samhljóða
11. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2025
Samþykkt er lántaka að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 250.000.000,- og höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 294.484.780,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Einnig er samþykkt að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 250.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039 í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar lánunum (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Eru lánin tekin til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum og byggingu fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Stefáni Brodda Guðjónssyni, sveitarstjóra, kt. 230771-4649, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Borgarbyggðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána.
Samþykkt samhljóða
Til máls tók: SBG
12. Grunnskóli Borgarfjarðar- Kleppjárnsreykjadeild - framkvæmdir á skólahúsnæði
Samþykkt samhljóða
13. Melabraut á Hvanneyri - staða og skipulag
Samþykkt samhljóða
14. Samstarf við Festi um uppbyggingu Brákareyjar
Samstarf við Festi um hugmynda- og skipulagsvinnu í Brákarey kom í framhaldi af ákvörðun sveitarfélagsins vorið 2022 að auglýsa eftir áhugasömum samstarfsaðilum um skipulagsmál og uppbyggingu í Brákarey.
Fyrstu tillögur að rammaskipulagi voru kynntar fyrir byggðarráði Borgarbyggðar og í kjölfarið fundað með fasteignaeigendum og rekstraraðilum í Brákarey. Niðurstöður voru svo kynntar fyrir íbúum og sveitarstjórn 2024 og í framhaldinu ráðist í gerð deiliskipulags byggt á þeim.
Nýtt aðalskipulag, sem samþykkt var til staðfestingar í síðasta mánuði, og nýtt deiliskipulag fyrir Brákarey, sem áætlað er að auglýsa eigi síðar en í mars, eru mikilvægar vörður á leið til uppbyggingar í Brákarey.
Nú þegar skipulagsvinna er langt komin er góður tímapunktur að undirstrika á ný sameiginlegan vilja Borgarbyggðar og Festis um að standa að uppbyggingu í Brákarey sem laðar að sér mannlíf og eykur lífsgæði íbúa.
Sveitarstjórn tekur vel í það markmið sem fram kemur í viljaýfirlýsingunni að hefja hönnun á endurmótaðri Brákarey í framhaldi nýju deiliskipulagi þannig að framkvæmdir gætu hafist á árinu 2027. Til að það verði að veruleika mun Borgarbyggð leggja sitt af mörkum til að innviðir sveitarfélagsins og innviðafélaga styðji við verkefnið.
Samþykkt samhljóða
15. Janus heilsuefling
Samþykktir samhljóða
16. Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða
Samþykkt samhljóða
17. Stjórnsýslukæra_sameiningakosningar_2025- Mál IRN25090129
Samþykkt samhljóða
18. Stjórnsýslukæra_sameiningakostningar_2025- Mál nr. IRN25090119
Framlagt."
Samþykkt samhljóða
19. Umhverfisviðurkenningar 2025
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:
Snyrtilegt bændabýli 2024: Hvítárvellir í Andakíl
Falleg lóð við íbúðarhúsnæði: Kjartansgata 6
Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði: Hótel Hamar
Sérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi:Pálstangi
Samfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar: Jóhannes Ellertsson
Snyrtilegt bændabýli 2024: Hvítárvellir í Andakíl
Falleg lóð við íbúðarhúsnæði: Kjartansgata 6
Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði: Hótel Hamar
Sérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi:Pálstangi
Samfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar: Jóhannes Ellertsson
Sveitarstjórn óskar þeim innilega til hamingju sem hlutu viðurkenningu og hvetur þau til áframhaldandi dáða.
Samþykkt samhljóða
20. Hreinsunarátök 2025
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar. Tilboðið felur ekki í sér kostnað fyrir sveitarfélagið né íbúa þess.
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
21. Snjómokstur í dreifbýli- Útboð 2025
Samkvæmt lögum um opinber innkaup er heimilt að ganga til samningskaupa án undangenginnar auglýsingar, sbr. 39. gr. laganna. Þar kemur m.a. fram að heimilt sé að nýta þessa aðferð þegar:
a. Engin tilboð, engin fullnægjandi tilboð, engar tilkynningar um þátttöku eða engar fullnægjandi tilkynningar um þátttöku berast vegna almenns eða lokaðs útboðs, enda sé í endanlegum samningi ekki vikið í verulegum atriðum frá upphaflegum skilmálum útboðsgagna.
(Tilboð telst ekki fullnægjandi þegar það hefur ekki tengsl við samninginn og dugir bersýnilega ekki, án verulegra breytinga, til að mæta þörfum kaupanda eða kröfum eins og þær eru tilgreindar í útboðsgögnum.)
c. Innkaup eru algerlega nauðsynleg vegna aðkallandi neyðarástands sem stafar af ófyrirsjáanlegum atburðum og ekki er unnt að standa við fresti í almennu útboði, lokuðu útboði eða samkeppnisútboði.
Sendur var tölvupóstur á bjóðendur í útboðinu ásamt fleiri verktaka á svæðinu sem þóttu líklegir til að geta tekið verkið að sér.
Byggðaráð leggur til að gengið verði til samninga við Kaldólf ehf. kt. 420305-0440 og felur sveitastjóra að undirrita samning með fyrirvara um samþykki sveitastjórnar.
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
22. Kæra nr. 119-2025, Mælimastur á Grjóthálsi
Úrskurður framlagður en niðurstaða hans er að kærumálinu er vísað frá úrskurðarnefndinni."
23. Vallarás - hönnun og framkvæmdir
Fyrir liggur uppfært kostnaðarmat sem felur talsverða lækkun frá fyrra kostnaðarmati. Þar með hafa forsendur breyst fyrir framkvæmdinni og kemur í veg fyrir að lóðunum fylgi kvöð vegna lagna. Byggðarráð samþykkir að vísa til sveitarstjórnar að stækka framkvæmdaverk vegna síðari áfanga Vallaráss um sem nemur kostnaði við færslu lagna við Vallarás 5 og 5a og felur sveitarstjóra að uppfæra viðauka V við framkvæmdaáætlun 2025.
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
24. Háskólasamfélagið í Borgarbyggð - rannsóknir og nýsköpun á Hvanneyri
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur miklar áhyggjur af því að uppbygging opinbers háskólasamfélags á Íslandi miðist út frá Háskóla Íslands og í gegnum hann muni liggja allar línur uppbyggingar opinbers háskólastarfs.
Í frumvarpi til breytinga á lögum um opinbera háskóla er t.a.m. ljóst að eingöngu einn skóli getur orðið "flaggskipsháskóli" og það er Háskóli Íslands enda miðað við lágmarks nemendafjölda í 5.000 nemendum. Ekki er er horft til sérstöðu eða tiltekinna styrkleika, landfræðilegrar nándar eða tækifæra í rannsóknum svo eitthvað sé nefnt. Sveitarstjórn Borgarbyggðar óttast að með þessari lagabreytingu sé verið að rýra tækifæri og frumkvæði annarra skóla til að vaxa eða stökkva á ný tækifæri.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hvetur stjórnvöld eindregið til að efla báða háskólana í kennslu, rannsóknum og nýsköpun með áherslu á uppbyggingu á Hvanneyri.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir framlagða umsögn.
Samþykkt samhljóða
25. Umræða um stöðu leiðar 81
Borgarbyggð hefur unnið ötullega að því að efla almenningssamgöngur m.a. með stuðningi úr byggðaáætlun og nú er allri þeirri vinnu stefnt í uppnám. Þessi vinna sem Borgarbyggð hefur lagt í til að bæta almenningssamgöngur hefur haft mjög góð áhrif á að tengja betur þéttbýli og dreifbýli og þá sérstaklega fyrir unga fólkið í sveitarfélaginu. Sífellt fleiri treysta á leið 81. Borgarbyggð hefur orðið til úr sameiningu 13 sveitarfélaga. Það er langt á milli á milli byggðakjarna en við berjumst við að þétta raðirnar, skapa samstöðu og kveða niður sundurlyndi. Okkar leið er fyrst og fremst að treysta á samgöngur! Svo sem að íbúar í dreifbýli geti stundað æfingar í íþróttamannvirkjum í Borgarnesi og öfugt. Að leggja niður eða skerða þjónustu á leið 81 setur stórt strik í reikning skóla, vinnustaða, íþrótta- og tómstundastarfs. Satt að segja hefur sveitarfélagið fremur verið að vona að af þessari leið fengist stuðningur í baráttu okkar við að bæta samgöngur við íbúa á Bifröst.
Þingmenn Norðvesturkjördæmis hafa verið upplýstir um þessa afstöðu sveitarfélagsisns og bindur sveitarstjórn vonir við að þessum áformum verði hnekkt.
Samþykkt samhljóða
Til máls tóku: REJ, SG, SÓ og EÓT
26. Vatnsrennibraut við sundlaug í Borgarnesi
Samþykkt samhljóða
27. Farsældarráð Vesturlands
Velferðarnefnd leggur til að Guðveig Eyglóardóttir og Kristján Ágúst Magnússon séu aðalmenn í samráðshópnum, Eðvar Ólafur Traustason og Bjarey Lárudóttir Bjarnadóttir séu varamenn, ásamt félagsmálastjóra í Borgarbyggð."
Samþykkt samhljóða
28. Byggðarráð Borgarbyggðar - 723
28.1
Vinna við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2026 stendur yfir. Nú standa yfir fundir sveitarstjórnar með forstöðumönnum og sviðsstjórum og í fyrradag fór fram vinnufundur sveitarstjórnar um framkvæmdaáætlun. Á fundum hafa sviðsstjórar og forstöðumenn farið yfir kynningar og minnisblöð. Ráðgert er leggja fjárhagsáætlun fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 13. nóvember næst komandi.
28.2
Framlögð ásamt viðbrögðum sveitarfélaganna.
28.3
Framlagður viðauki V vegna fjárhagsáætlunar 2025. Stofnaður verður nýr framkvæmdaliður sem ber heitið "Fráveitumál á Kleppjárnsreykjum" og veitt fjárheimild til hans að fjárhæð 45 m.kr. Á móti er færð lækkun á fjárheimild vegna framkvæmda við nýbyggingu GBF Kleppgjárnsreykjadeildar að fjárhæð 33 m.kr. og lækkun fjárheimilda vegna gerðar stíga í Borgarbyggð um 12 m.kr. Samtals áhrif á fjárfestingaráætlun 2026 því kr. 0. Þörf er á endurbótum á fráveitu á Kleppjárnsreykjum m.a. sem tengist byggingum í eigu sveitarfélagsins. Brátt verður lokið við nýbyggingu við Grunnskóla Borgarfjarðar-Kleppjárnsreykjadeild og samhliða þeirri vinnu hefur verið farið í nauðsynlegar umbætur á fráveitu og nauðsyn að halda áfram þeirri vinnu. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.Eiríkur Ólafsson fór af fundi.
28.4
Framlagt uppgjör við Verkís frá í júlí þar sem Verkís endurgreiddi Borgarbyggð kr. 850.000,- vegna vinnu við niðurrifsáætlun og ráðgjöf vegna niðurrifs gamla sláturhússins í Brákarey. Byggðarráð felst á að með þessari greiðslu hafi Verkís endurgreitt þann kostnað sem féll til vegna ráðgjafar í upphafi verks en byggðarráð hefur gert alvarlegar athugasemdir við vinnu Verkís við undirbúning og áætlunargerð verksins. Ekki er gerð athugasemd við þá vinnu sem innt hefur verið af hendi við eftirlit með framkvæmdinni. Jafnframt lagt fram minnisblað frá Verkís vegna málsins.Samþykkt samhljóða.
28.5
Framlagt.
28.6
Framlagt
28.7
Framlagt.
28.8
Við Melabraut á Hvanneyri er skipulagt svæði fyrir atvinnustarfsemi og uppbygging stendur yfir. Í nýju húsnæði sem þar er að rísa verður m.a. slökkvistöð Slökkviliðs Borgarbyggðar. Ljóst er að mikil þörf er á endurbótum á götunni sjálfri. Land er í eigu Landbúnaðarháskólans en samkvæmt samkomulagi við skólann tilheyra byggingarlóðir við Melabraut svæði í umsjá Borgarbyggðar en gatan sjálf ekki. Að mati byggðarráðs er það fyrirkomulag ekki heppilegt. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir breytingum á þessu fyrirkomulagi þannig að sá hluti sem tilheyrir atvinnusvæðinu færist á ábyrgð sveitarfélagsins. Það verði t.d. gert með viðauka við samning sem nú er í gildi. Sveitarstjóra er falið að láta kostnaðarmeta nauðsynlegar endurbætur á hluta Melabrautar. Að fengnu samþykki LBHÍ verði stefnt að því að hefja endurbætur hið fyrsta fáist ásættanlegt tilboð í verkið. Samþykkt samhljóða.
28.9
28.10
Lagt fram til kynningar.
28.11
Í framhaldi af afgreiðslu frá fundi sveitarstjórnar nr. 264 óskaði sveitarstjóri eftir formlegum fundi með Veitum til að fara yfir rekstur og eignarhald á Vatnsveitu Varmalands. Á fundi sem sveitarstjóri og formaður byggðarráðs áttu með Veitum dags. 3. október 2025 lögðu Veitur til að Vatnsveita Varmalands keypti framvegis vatn í heildsölu frá Veitum sem afhent yrði við stút. Eignarhald og rekstur dreifikerfisins yrði á ábyrgð þriðja aðila, hvort sem það er sveitarfélagið sjálft eða sérstakt félag sem yrði stofnað um reksturinn. Þessi afstaða hefur síðar verið staðfest í tölvupóstsamskiptum.Ljóst er að í þessu felst að Veitur hafna þeirri tillögu að taka yfir rekstur og eignarhald á Vatnsveitu Varmalands. Í ljósi þess leggur byggðarráð til við sveitarstjóra að láta fara fram mat á endurnýjunarþörf dreifikerfis Vatnsveitu Varmalands, yfirfara stofnskrá og samþykktir og kanna möguleika á vatnsöflun á svæði sem er innan dreifikerfis veitunnar. Vísað til áframhaldandi vinnu í Umhverfis- og landbúnaðarnefnd. Samþykkt samhljóða.
28.12
Framlagt og vísað til yfirstandandi vinnu við fjárhagsáætlun. Samþykkt samhljóða.
28.13
Góðgerðarfélög, íþróttafélög og ýmis önnur félög sem ekki eru rekin með arðsemi að leiðarljósi standa frammi fyrir hækkun á kostnaði vegna upptöku á gjaldskrá vegna móttöku á ákveðnum úrgangsflokkum. Vísað til umræðu í fjárhagsáætlun um gjaldskrá móttökustöðva að taka afstöðu til beiðninnar. Samþykkt samhljóða.
28.14
Byggðarráð samþykkir framlagða beiðni um húsnæðisframlag vegna ársins 2026 og vísar til fjárhagsáætlunar 2026.Samþykkt samhljóða.
28.15
Framlögð tillaga að fyrirkomulagi fjármögnunar hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Sveitarstjóra falið að leggja drög að lánasamningi fyrir næsta fund byggðarráðs í samræmi við tillögu.Samþykkt samhljóða.
28.16
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar. Tilboðið felur ekki í sér kostnað fyrir sveitarfélagið né íbúa þess.Samþykkt samhljóða.
28.17
Byggðaráð leggur til að gengið verði til samninga við Kaldólf ehf. kt. 420305-0440 og felur sveitastjóra að undirrita samning með fyrirvara um samþykki sveitastjórnar.Samþykkt samhljóða.
28.18
Framlagt.
29. Byggðarráð Borgarbyggðar - 724
29.1
Vinna við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2026 stendur yfir. Ráðgert er leggja fjárhagsáætlun fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 13. nóvember næst komandi.
29.2
Nýjasti viðauki við kæru til Innviðráðuneytisins vegna íbúakosninga um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps lagður fyrir byggðarráð. Byggðarráð áréttar umboð fyrirsvarsmanna Borgarbyggðar þ.e. sveitarstjóra og forseta sveitarstjórnar til að standa að svörum fyrir hönd sveitarfélagsins við framkomnum kærum hér eftir sem hingað til. Það er tiltekin stjórnsýsluvenja hjá Borgarbyggð að kærur ásamt greinargerðum sveitarfélagsins eru lagðar saman fyrir byggðarráð og síðar fyrir sveitarstjórn eins fljótt og unnt er að teknu tilliti til kærufresta. Bent er á að um flýtimeðferð er að ræða í umræddum kærumálum og því mjög skammir kærufrestir veittir. Byggðarráð er upplýst um efni þeirra kæra sem hafa borist og greinargerða sem hafa farið frá sveitarfélaginu þar sem veitt eru andsvör og telur ekki þörf á því að boða til aukafunda til að fara yfir einstaka svör ef kærufrestir eru skammir.Samþykkt samhljóða.
29.3
Framlagt og byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti uppfærðan lóðarleigusamning og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.
29.4
Afréttir Hraunhrepps og Kolbeinsstaðahrepps liggja að Hítará. Þann 7. júlí 2018 féll berghlaup úr Fagraskógarfjalli ofan í Hítardal og fyllti farveg Hítarár á um 1,5 kílómetra kafla. Við það breyttist farvegur Hítarár og þornaði upp á löngum kafla m.a. í landi í eigu sveitarfélagsins. Hítará er með betri laxveiðiám landsins og verðmæti í þeim hlunnindum sem fylgt hafa ánni. Byggðarráði er lögum samkvæmt falin fjármálastjórn sveitarfélagsins og þar með ábyrgð á fjárhagslegum verðmætum þess. Byggðarráð felst á að sem landeigandi og eigandi hlunninda er mikilvægt er að fá upplýsingar um þau verðmæti sem eru í húfi fyrir sveitarfélagið. Byggðarráð tekur vel í það erindi að Borgarbyggð taki þátt í láta kanna lagalegan grundvöll þess að endurheimta ána í fyrri farveg og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar að það sé gert. Einnig að skoðuð verði áhrif þess að aðhafast ekkert. Sveitarstjóra er falið að afla upplýsinga um áætlaðan kostnað og leggja fyrir að nýju.Samþykkt samhljóða.
29.5
Starfsemi Öldunnar fer fram í húsnæði sem sveitarfélagið er með á leigu. Brýnt er að ráðast í endurbætur vegna frárennslis og viðræður í gangi um hvort þær endurbætur koma í hlut leigjanda eða leigutaka. Byggðarráði gerð grein fyrir stöðunni. Ekki er hægt að bjóða starfsfólki Öldunnar upp á að núverandi stöðu og samþykkir byggðarráð að fela sveitarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun þannig að hægt verði að ráðast í viðgerð óháð því hvort endanlegur kostnaður fellur á sveitarfélagið. Samþykkt samhljóða.
29.6
Lögð fram tilllaga að viðbót við viðauka V við fjárhagsáætlun 2025. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til annars vegar viðhalds gatna að fjárhæð 10,0 m.kr. og til viðhalds lóða að fjárhæð 2,3 m.kr. innan eignasjóðs. Fjárheimildin er annars vegar til að ráðast í endurbætur á því svæði sem tilheyrir atvinnusvæði við Melabraut á Hvanneyri sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 723, Hins vegar er um að ræða endurbætur á stæði framan við slökkvistöðina við Sólbakka að tillögu slökkviliðsstjóra til að tryggja greiðan aðgang neyðarviðbragðs að og frá stöðinni án nokkurra tafa. Á móti lagt til að viðhaldsliður í rekstri slökkviliðs verði lækkaður um 2,3 m.kr. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2025 um allt að 10,0 m.kr. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
29.7
Byggðarráð þakkar íbúum fyrir gott samtal og góðar ábendingar um þjónustustefnuna. Nú er unnið úr ábendingum og verður stefnan lögð fyrir næsta fund sveitarstjórnar til samþykktar. Íbúar geta áfram komið ábendingum á framfæri í gegnum borgarbyggd@borgarbyggd.is til 1. nóvember.
29.8
Framlagt, en í greingargerð er gerð er tillaga um nýjan starfsmann hjá heilbrigðiseftirlitinu sem greiddur yrði af sveitarfélögunum og sinnti tiltekt á lóðum og lendum. Samþykkt að vísa til umsagnar hjá Umhverfis- og landbúnaðarnefnd og til frekari umræðu í yfirstandi vinnu við fjárhagsáætlun.Samþykkt samhljóða.
29.9
Framlagðar tillögur að nokkrum gjaldskrám sem heyra undir fjölskyldusvið. Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs kemur til fundarin. Samþykkt að vísa til umræðu um fjárhagsáætlun 2026 og í framhaldinu til samþykktar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.
29.10
Sonja Lind Eyglóardóttir íþrótta og tómstundafulltrúi kemur til fundarins undir þessum dagskrárlið. Í tillögunni felst að settur verði á fót starfshópur sem hafi það verkefni að skoða fýsileika þess að samþætta frístundar- og íþróttastarf í Borgarbyggð. Um yrði að ræða tilraunaverkefni sem m.a. hefði að markmiði að þróa kerfi sem stuðlar að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, styrkja þjónustu frístundar og stuðla að auknum samvistum fjölskyldna. Byggðarráð tekur vel í erindið en vísar til umsagnar í fræðslunefnd. Áætlun um kostnað við verkefnið er vísað til yfirstandandi vinnu við fjárhagsáætlun 2026.Samþykkt samhljóða.Eiríkur Ólafsson og Hlöðver Ingi Gunnarsson fara af fundi.
29.11
Formaður byggðarráðs og sveitarstjóri hafa átt samtal við rektor Landbúnaðarháskóla Íslands um afmörkun svæðis sem Borgarbyggð er með á leigu við Melabraut. Tekið var vel í það erindi að Borgarbyggð taki yfir ábyrgð á hluta Melabrautar. Sveitarstjóra falið að gera drög að viðauka við núgildandi leigusamning og leggja fyrir byggðarráð.Samþykkt samhljóða.
29.12
Framlagt.
30. Byggðarráð Borgarbyggðar - 725
30.1
Farið yfir vinnu sem nú stendur yfir við fjárhagsáætlun 2026. Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar verður lög fram til fyrri umræðu 13. nóvember næst komandi.
30.2
Farið yfir rekstur Ljósleiðara Borgarbyggðar á yfirstandandi ári og horfur í rekstri á árinu 2026.
30.3
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Ljósleiðara Borgarbyggðar. Samþykkt að vísa til umræðu um fjárhagsáætlun 2026 og í framhaldinu til samþykktar í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.Guðmundur Daníelsson og Eiríkur Ólafsson fóru af fundi.
30.4
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.Samþykkt samhljóða.
30.5
Framlagt. Byggðarráð er upplýst um efni þeirra kæra, og viðauka vegna þeirra, sem hafa borist og greinargerða sem hafa farið frá sveitarfélaginu þar sem veitt eru andsvör. Vísað til sveitarstjórnar.
30.6
Lagt fram.
30.7
Úrskurður framlagður en niðurstaða hans er að kærumálinu er vísað frá úrskurðarnefndinni.
30.8
30.9
Byggðarráð þakkar fulltrúum Festis fyrir gott samtal um þá vinnu sem nú stendur yfir og þá uppbyggingu sem stefnt er að. Lögð fram drög að uppfærðri viljayfirlýsingu milli Borgarbyggðar og Festis um samstarf um skipulag og uppbyggingu í Brákarey. Byggðarráð tekur vel í framlögð drög og felur sveitarstjóra að fullvinna í samstarfi við Festi og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóðaþ
31. Byggðarráð Borgarbyggðar - 726
31.1
Drög að áætlun um rekstur 2026 og fjárfestingar 2026-2029 rædd og kynnt. Lagt til að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt milli ára 14,97%. Drögum að fjárhagsáætlun er vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn sem fram fer 13. nóvember næst komandi og í framhaldinu til kynningar í sveitarstjórn Skorradalshrepps.Samþykkt samhljóða.
31.2
Um er að ræða verkefni er snúa að aðgengi milli eldri og nýrri hluta t.d. snjóbræðslu og lýsingu ásamt hönnun á eldri hluta Uglukletts varðandi séruppdrætti. Byggðarráð tekur undir að æskilegt er að ráðast í þau verkefni sem lagt er til. Það mun auðvelda verklag við framkvæmdir við eldri og nýja hluta ásamt útisvæði. Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir kostnaðaráætlun á séruppdráttum vegna eldri hluta.Samþykkt samhljóða.
31.3
Tvö sambærileg tilboð bárust frá þjónustufyrirtækjum. Byggðarráð samþykkir tillögu um að gengið verði að tilboði frá Fastus að upphæð 11.390.347 kr. m/vsk. og vísar til gerðar viðauka við framkvæmdaáætlun.Samþykkt samhljóða.
31.4
Farið yfir stöðuna og valkostir ræddir og vísað til skipulags- og byggingarnefnd að leggja mat á valkosti.Samþykkt samhljóða.
31.5
Fyrir liggur uppfært kostnaðarmat sem felur talsverða lækkun frá fyrra kostnaðarmati. Þar með hafa forsendur breyst fyrir framkvæmdinni og kemur í veg fyrir að lóðunum fylgi kvöð vegna lagna. Byggðarráð samþykkir að vísa til sveitarstjórnar að stækka framkvæmdaverk vegna síðari áfanga Vallaráss um sem nemur kostnaði við færslu lagna við Vallarás 5 og 5a og felur sveitarstjóra að uppfæra viðauka V við framkvæmdaáætlun 2025. Samþykkt samhljóða.
31.6
Byggðarráð samþykkir drög að viðauka og felur sveitarstjóra að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.Ottó Ólafsson og Hlynur Ólafsson foru af fundi.
31.7
Drög að samningum um langtímalántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga lagðir fram en ekki hefur verið endanlega gengið frá þeim hluta er snýr að vaxtakjörum. Byggðarráð felur sveitarstjóra að fullvinna og leggja fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.Samþykkt samhljóða.
31.8
Lögð fram tillaga að gjaldskrá hjá Hjálmaklett. Vísað til samþykktar í sveitarstjórn.
31.9
Farið yfir þróun rekstrar og fjárfestinga fyrstu níu mánuði ársins. Tekjuþróun hefur verið jákvæðari yfir tímabilið heldur en staða við uppgjör fyrstu sex mánaða gaf til kynna. Það skýrist aðallega af jákvæðari þróun útsvarstekna. Horfur í rekstri hafa því styrkst.
31.10
Lögð fram viðbót við viðauka V við fjárhagsáætlun 2026. Í viðbótinni er uppfærsla á áætlun sem tengist breytingum á rauntölum 2024 og áætlunar sem var grunnur áætlunar 2025. Samtals eru áhrif á rekstraráætlun samstæðu neikvæð um 74,3 m.kr. sem skýrist af áhrifum samstarfsverkefna en um er að ræða reikningsleg áhrif af afskriftum og fjármagnsliðum.Lögð er til sú breyting á fjárfestingaráætlun að stofnaður verði liðurinn bílastæði í Borgarnesi og þar veitt heimild að fjárhæð 5,1 m.kr. en á móti lækkar rammi vegna stígagerðar um samsvarandi fjárhæð. Þá er lögð til hækkun á ramma vegna framkvæmda við GBF á Kleppjárnsreykjum um 12,0 m.kr. sem leiðir til þess að áður samþykkt lækkun á rammanum verður 21,0 m.kr. í stað 33,0 m.kr. sbr. afgreiðslu byggðarráðsfundar nr. 723. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
31.11
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðunum Hrafnaflöt 2, 4 og 6 til Trésmiðjunnar Akurs ehf. með fyrirvara um breytingu á deiliskipulagi.Samþykkt samhljóða.
31.12
Byggðarráð samþykkir tillögu Velferðarnefndar um að ganga til áframhaldandi samninga við Janus heilsueflingu og að valin verði þjónustuleið 1 og miðað við samning til tveggja ára.Samþykkt samhljóða.
31.13
Á 724. fundi byggðarráðs var tekið fyrir erindi tveggja landeigenda við Hítará þar sem óskað var eftir þátttöku sveitarfélagsins í að láta fara fram athugun á lagalegri stöðu. Í bókun fundarins felst byggðarráð á "að sem landeigandi og eigandi hlunninda er mikilvægt er að fá upplýsingar um þau verðmæti sem eru í húfi fyrir sveitarfélagið. Byggðarráð tekur vel í það erindi að Borgarbyggð taki þátt í láta kanna lagalegan grundvöll þess að endurheimta ána í fyrri farveg og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar að það sé gert. Einnig að skoðuð verði áhrif þess að aðhafast ekkert."Í kjölfarið hefur sveitarstjóra borist erindi frá formanni stjórnar Veiðifélags Hítarár vegna málsins. Þar var m.a. óskað eftir aðkomu stjórnar veiðifélagsins að málinu og farið yfir mikilvægi þess að lagaleg athugun taki tillit til sjónarmiða annarra veiðiréttarhafa. Þá eru gerðar athugasemdir við fullyrðingar sem fram koma í upphaflegu erindi landeigendanna til Borgarbyggðar um tjón vegna breytinga á farvegi Hítarár. Þá kemur fram að núverandi stjórn vinnur út frá samþykktum tillögum félagsfundar dags. 8. desember 2018 þar sem samþykkt var að meta til hlítar valkosti vegna framtíðarfarvegs Hítarár og að niðurstaða þeirrar vinnu yrði lögð fyrir félagsfund. Fram kemur að markmið stjórnar sé að ná ásættanlegri lendingu í þessu máli þar sem allir hlutaðeigandi geti unað lendingu í málinu og að byggt sé undir lífríki Hítarár til framtíðar.Byggðarráð er meðvitað um að skiptar skoðanir eru meðal landeigenda við Hítará um hvort og þá hvernig bregðast skuli við þeirri stöðu að Hítará breytti um farveg í kjölfar berghlaupsins í júlí 2018 og þornaði upp á kafla, m.a. í landi sveitarfélagsins. Borgarbyggð forðast að taka að sér hlutverk innan frjálsra veiðifélaga eða vera milligönguaðili á milli eigenda veiðiréttar. Byggðarráð gætir fjárhagslegra hagsmuna sveitarfélagsins og hlunnindi eru þar á meðal. Það samþykkir því þátttöku í athugun á lagalegri stöðu sem unnin verður að frumkvæði landeigenda í sömu stöðu og sveitarfélagið.Byggðarráð gerir ekki athugasemd við aðild stjórnar veiðifélagsins eða annarra landaeigenda eða hagsmunaaðila að þessari athugun. Það er enda mikilvægt að sem flest sjónarmið verði tekin til skoðunar í þeirri vinnu. Fyrirhuguð athugun á lagalegri stöðu er hins vegar ekki unnin að frumkvæði byggðarráðs eða sveitarfélagsins né lýtur hún þeirra verkstjórn.Gróft kostnaðarmat felur í sér að kostnaður sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar athugunar verði 200 - 500 þúsund krónur og er þá miðað við að þriðjungur kostnaðar komi í hlut sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.
31.14
Framlögð fullunnin drög að viljayfirlýsingu milli Festis og Borgarbyggðar varðandi skipulag og uppbyggingu í Brákarey sbr. afgreiðslu fundar byggðarráðs nr. 725. Byggðarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og felur sveitarstjóra að undirrita með fyrirvara um fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.Eiríkur Ólafsson fór af fundi.
31.15
Hönnun lagnaleiðar er nú í lokarýni hjá Veitum en samkvæmt yfirliti er áætlaður samanlagður kostnaður vatnsveitu og hitaveitu um 20 m.kr. Samþykkt og vísað til framkvæmdaáætlunar 2026.
32. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 80
32.1
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir þjónustusvæði Baulu. Lagður er fram uppdráttur dags. 22.10.2025. Deiliskipulag þetta samræmist gildandi aðalskipulagi. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða
32.2
32.3
32.4
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að notkun lóðarinnar Skiphylsland verði breytt úr sumarhúsalóð í einbýlishúsalóð.Samþykkt samhljóða.
32.5
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 20.10.2025. Breytingin er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.
32.6
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að gerð verði breyting á deiliskipulagi gamla miðbæjarins miðað við framkomnar hugmyndir en leggur áherslu á að breytingarnar verði kynntar vandlega fyrir íbúum og hagsmunaaðilum.Samþykkt samhljóða.
32.7
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að landnotkun fyrir Mýrar verði breytt úr landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu að því tilskyldu að deiliskipulag verði unnið samhliða fyrir svæðið og verslunar- og þjónustusvæði VÞ12 sem skilgreint er í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar 2022-2037 sem nú er í ferli.Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að skipulagsferlið geti ekki hafist fyrr en endurskoðað aðalskipulag Borgarbyggðar 2022-2037 hefur tekið gildi. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma frekari ábendingum sem fram komu á fundinum á framfæri til málsaðila.Samþykkt samhljóða.
32.8
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að láta breyta deiliskipulagi Flatahverfis á Hvanneyri.Samþykkt samhljóða.
32.9
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að skrifa umsögn fyrir hönd Borgarbyggðar og leggja fyrir sveitarstjórn.Samþykkt samhljóða.
32.10
Skipulags- og byggingarnefnd telur að vegna staðsetningar lóðarinnar, við innkomu inn í Borgarnes frá suðri, þurfi að vinna enn frekar með landslagshönnun á lóðinni með tilliti til fegrunar umhverfisins. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með lóðarhöfum.Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður er fram skipulagsuppdráttur, dags. 23.06.2025, ásamt skýringaruppdráttum. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.
32.11
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta breyta deiliskipulagi Fjólukletts - Kveldúlfshöfða frá árinu 2024.Samþykkt samhljóða.
33. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 82
33.1
33.2
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmönnum að vinna fjárhagsáætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum.
33.3
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd fór yfir gjaldskrár og samþykktir sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur til að svo stöddu að gjald vegna Móttökustöðvar á Sólbakka verði óbreytt milli ára.
33.4
33.5
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd telur ekki tímabært að ráða sérstaklega starfsmann hjá heilbrigðiseftirlitinu til að sinna tiltekt á lóðum og lendum á Vesturlandi og Kjósarhreppi. Nefndin telur að þörf á frekari umræðu á vettvangi aðildarsveitarfélaga HEV áður en slík ákvörðun er tekin.
33.6
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:Snyrtilegt bændabýli 2024: Hvítárvellir í AndakílFalleg lóð við íbúðarhúsnæði: Kjartansgata 6Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði: Hótel HamarSérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi:PálstangiSamfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar: Jóhannes Ellertsson
34. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 246
Til máls tók REJ um lið 3 í fundargerð
Til máls tók SÓ um lið 3 í fundargerð
Til máls tók EÓT um lið 3 í fundargerð
34.1
Lagt fram til kynningar. Tillaga fyrir fyrstu umræðu í fjárhagsáætlun fyrir fræðslusvið og Æskulýðs- og íþróttamál er kynntar fyrir nefndinni.
34.2
Lagðar fyrir fræðslunefnd gjaldskrár fyrir Frístund, Listaskóla, sumarfjör, Íþróttamiðstöðvar og starfsfólk mötuneyta í grunnskólum Borgarbyggðar. Flesta gjaldskrár eru að hækka um 3,2%. Fræðslunefnd leggur áfram áherslu á að bjóða uppá frítt árskort í íþróttamiðstöð fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð. Samþykkt samhljóða.
34.3
Lagðar eru fram breytingar á gjaldskrá sem snúa að því að hækka fæðisgjald um 8% fyrir árið 2026, takaupp skráningardaga og sérstakt gjald fyrir þá. Í staðinn er lagt til að dagvistunargjald hækki ekki á milli ára. Einnig eru lagðar til breytingar á verklagsreglum leikskóla Borgarbyggðar sem endurspeglabreytingar sem eru lagðar til á gjaldskrá ásamt breytingum sem taka mið af gildandi lögum og verklagi leikskólanna. Samþykkt samhljóða.
35. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 165
35.1
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
35.2
Lögð fram fundargerð 10. fundar Fjölmenningarráðs.
35.3
Velferðarnefnd fer yfir fjárhagsáætlun og minnisblöð varðandi þá liði fjárhagsáætlunar er lúta að málefnum nefndarinnar. Nefndin gerir enga athugasemd við þá fjárhagsáætlum sem afgreidd hefur verið af Byggðarráði til fyrri umræðu í sveitaastjórn. Samþykkt samhljóða.
35.4
Velferðarnefnd lýsir yfir mikilli ánægju með mögulegri aðkomu Þroskahjálpar á Vesturlandi að uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi. Nefndin leggur áherslu á að brýnt sé að koma á skammtímadvöl á svæðinu og skrifað verði undir viljayfirlýsingu milli Þroskahjálpar á Vesturlandi og sveitarfélaga á Vesturlandi. Væntingar eru jafnframt um að samhliða skammtímadvöl verði hægt að nýta húsnæðið í úrræði á grundvelli barnaverndarlaga.
35.5
Velferðarnefnd leggur til að Guðveig Eyglóardóttir og Kristján Ágúst Magnússon séu aðalmenn í samráðshópnum, Eðvar Ólafur Traustason og Bjarey Lárudóttir Bjarnadóttir séu varamenn, ásamt félagsmálastjóra í Borgarbyggð.
35.6
Velferðarnefnd felur félagsmálastjóra að kalla til fyrsta fundar.
35.7
Velferðarnefnd þakkar Heiðrúnu fyrir yfirferð á greinargerðum ráðsins. Jafnframt lýsir Velferðarnefnd ánægju með störf Fjölmenningarráðs.
35.8
Lögð fram fundargerð 7. fundar Fjölmenningarráðs.
35.9
Lögð fram fundargerð 8. fundar Fjölmenningarráðs.
35.10
Lögð fram fundargerð 9. fundar Fjölmenningarráðs