16. mars, 2026
Fréttir

Borgarbyggð leitar eftir áhugasömum aðilum til að halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni í sumar.

Annars vegar er um að ræða námskeið sem geta orðið hluti af Sumarfjöri fyrir börn í 1.–4. bekk, þar sem hægt er að bjóða upp á eins dags eða tveggja daga námskeið.

Hins vegar er leitað eftir aðilum sem vilja halda utan um sumarnámskeið fyrir börn í 5.–7. bekk, sem geta verið viku- eða tveggja vikna námskeið.

Dæmi um námskeið geta verið:

  • útivistarnámskeið
  • íþróttanámskeið
  • listnámskeið
  • dansnámskeið
  • leikjanámskeið
  • lífstíls- og framkomunámskeið

Borgarbyggð greiðir fyrir námskeiðin að hluta eða að fullu, eftir umfangi og eðli verkefnisins. Borgarbyggð er opin fyrir fjölbreyttum hugmyndum og hvetur áhugasama til að hafa samband.

Nánari upplýsingar veitir Sonja Lind Eyglóardóttir, íþrótta- og tómstundarfulltrúi

sonjalind@borgarbyggð.is og í síma 862-8908

Tengdar fréttir

13. mars, 2026
Fréttir

Ungt fólk mótar framtíðarsýn í Borgarbyggð

Þann 10. mars síðastliðinn fór fram sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Borgarbyggð. Fundurinn er haldinn með svipuðu sniði og hefðbundinn sveitarstjórnarfundur þar sem fulltrúar í Ungmennaráði Borgarbyggðar taka þátt ásamt kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum. Á fundinum kynntu ungmennin helstu áherslumál ungmennaráðs og ræddu þau við sveitarstjórn. Erindi fulltrúa ungmennaráðs voru fjölbreytt og snertu meðal annars forvarnir, íþrótta- og tómstundamál, skólastarf og geðheilsu ungmenna …