3. febrúar, 2026
Fréttir

EFLA, fyrir hönd Borgarbyggðar óskar eftir tilboðum í byggingu á 845 m² leikskólahúsnæði við Ugluklett í Borgarnesi.

Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 2026. Verklok framkvæmda eru 31. ágúst 2027.

Helstu magntölur

  • Rif og förgun, rif á útveggjaklæðningu 108 m², rif á inniveggjum 36 m², rif á loftaefni 112 m², rif á gólfefnum 112 m².
  • Uppgröftur 2830 m³
  • Fyllingar 2020 m³
  • Steypumót 942 m²
  • Járnbending 7.980 kg
  • Steinsteypa 1.568 m³
  • Forsteyptar einingar 1.701 m²
  • Gluggar 28 stk
  • Útihurðir 11 stk
  • Léttir innveggir 374 m²

 

Útboðsgögn verða aðgengileg rafrænt á útboðsvef  EFLU í útboðskerfi Ajour frá og með 3. febrúar 2026 og verða því ekki afhent útprentuð.

Tilboð verða opnuð föstudaginn 6. mars 2026 kl 11:00

Tengdar fréttir

19. mars, 2026
Fréttir

Breyttur opnunartími vegna árshátíðar starfsmanna Borgarbyggðar

Vegna árshátíðar starfsmanna Borgarbyggðar mun íþróttamiðstöðin í Borgarnesi loka klukkan 16:00, laugardaginn 21. mars. Íþróttamiðstöðin opnar svo aftur að óbreyttu sunnudaginn 22. mars, klukkan 12:00. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

18. mars, 2026
Fréttir

Menningarsjóður Borgarbyggðar

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á …