6. febrúar, 2026
Fréttir

Lilja Björg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Viktor Ingi, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála heimsóttu nýverið ungmenni í Borgarbyggð þar sem þau kynntu Borgarbyggð, þau verkefni sem sveitarfélagið sinnir, stjórnsýslu og stafræna vegferð sveitarfélagsins. Meginástæða heimsóknanna var að kynna hugmyndasamkeppni meðal ungmenna sveitarfélagsins um nafn og útlit á nýjum starfsmanni Borgarbyggðar sem tekinn var til starfa á síðasta ári.

Starfsmaðurinn sem um ræðir er stafrænt vinnuafl sem mun gegna mikilvægu hlutverki við að auka sjálfvirkni og skilvirkni í þjónustu Borgarbyggðar. Verkefni stafræna vinnuaflsins eru meðal annars afstemming lánadrottna og kröfuvöktun en fleiri verkefni eru í þróun.

Með tilkomu stafræna vinnuaflsins stígum við stórt skref í átt að bættri þjónustu við íbúa og betra starfsumhverfi starfsmanna.

Heimsóknirnar fóru fram í Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar og Menntaskóla Borgarfjarðar, þar sem ungmennum sveitarfélagsins gafst tækifæri til að fræðast um sveitarfélagið og taka virkan þátt í að móta auðkenni eða logo fyrir nýjan stafrænan starfsmann.

Einstaklega gaman var að hitta ungmennin, heyra hugmyndir þeirra og finna fyrir mikilli sköpunargleði enda einstaklega efnilegur hópur sem við eigum hérna í sveitarfélaginu.

Við hlökkum til að sjá hugmyndir þeirra blómstra og þeirra þáttöku við að þróa verkefnið með okkur.

Tengdar fréttir

10. ágúst, 2026
Fréttir

Sólmyrkvagleði Borgarbyggðar

Í tilefni af einstöku náttúruundri mun Borgarbyggð bjóða íbúum og gestum að eiga góða stund í Skallagrímsgarði þann 12. ágúst næstkomandi þar sem boðið verður upp á tónlist, popp, candy floss og hoppukastala. Því er tilvalið að taka með sér tjaldstóla og teppi og upplifa þessa merkilegu stund saman. Athugið að öllum er frjálst að koma sér fyrir hvar sem …

7. ágúst, 2026
Fréttir

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin verður þann 29. ágúst 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.