16. október, 2025
Fréttir

Starfamessa fór fram í Hjálmakletti, Borgarnesi þann 14. október sl. Starfamessan er vettvangur þar sem fyrirtæki, stofnanir og menntastofnanir kynna fjölbreytt störf, starfsgreinar og menntunarmöguleika fyrir nemendum og öðrum áhugasömum.
Um fjörutíu fyrirtæki og stofnanir tóku þátt, þar sem starfsemi þeirra var kynnt  fyrir nemendum úr tveimur elstu bekkjum grunnskólanna í héraðinu. Að því loknu, eða upp úr hádegi bauðst  síðan almenning tækifæri til að líta við og kynna málið.
Að viðburðunum standa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi með stuðningi úr Sóknaráætlun Vesturlands. Hrafnhildur Tryggvadóttir, ráðgjafi hjá SSV, hafði yfirumsjón með verkefninu og Hlédís Sveinsdóttir starfaði sem verkefnisstjóri.
Viðburðurinn fór vel fram og gaman er að eiga samtalið við ungmenni sem velta fyrir sér næstu skrefum eftir grunn- eða menntaskóla.

Þau Íris Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri og Viktor Ingi, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála sáu um kynningarbás Borgarbyggðar

Gestum bauðst að klæða sig upp vesti lögreglunnar


Tengdar fréttir

16. október, 2025
Fréttir

Leikskólabörn heimsækja ráðhúsið

Ráðhúsið fékk skemmtilega heimsókn frá flottum hópi barna úr leikskólanum Ugluklett í gær. En heimsókn þessi er hluti af verkefni þar sem þau brjóta upp daglegt starf og heimsækja stofnanir og fyrirtæki. Heimsóknin nýttist til að sýna þeim frá daglegu starfi í ráðhúsinu en fyrst og fremst að eiga við þau samtal og heyra þeirra skoðanir, sem þóttu sterkar og …