roofing
Fréttir og tilkynningar
10. ágúst, 2026
Fréttir
Í tilefni af einstöku náttúruundri mun Borgarbyggð bjóða íbúum og gestum að eiga góða stund í Skallagrímsgarði þann 12. ágúst næstkomandi þar sem boðið verður upp á tónlist, popp, candy floss og hoppukastala. Því er tilvalið að taka með sér tjaldstóla og teppi og upplifa þessa merkilegu stund saman.
Athugið að öllum er frjálst að koma sér fyrir hvar sem er til að fá betra útsýni þegar viðburður nær hámarki.
Gleðin hefst kl.16:00 og góðgæti í boði á meðan birgðir endast.
Búast má við mikilli umferð um sveitarfélagið og hvetjum við ökumenn og vegfarendur til að sýna aðgát og þolinmæði.
Tengdar fréttir

9. september, 2026
Fréttir
Pourquoi Pas? 90 ára ártíð
Í september eru liðin 90 ár frá því franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við Mýrar árið 1936. Strandið markaði djúp spor í samfélagið á Mýrum. Af því tilefni verður efnt til minningardagskrár miðvikudaginn 16. september. Þar verður sagan rifjuð upp og minning skipsins, áhafnar þess og Íslandsvinarins Jean-Baptiste Charcot höfð í heiðri. Um leið og sjónum verður beint að tengslum …

8. september, 2026
Fréttir
4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar
4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, fimmtudaginn, 10. september nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.