roofing
Fréttir og tilkynningar
11. júní, 2025
Fréttir
Kæru foreldrar/forráðamenn barna í Borgarbyggð
Opið er fyrir skráningu barna í frístund fyrir komandi skólaár 2025-2026. Skráning fer fram inn á www.vala.is
Foreldrar eru hvattir til að skrá börnin sín fyrir 10.ágúst.
Frístund hefst eftir að skóladegi lýkur og er opin til klukkan 16:00/16:15
Frístundarheimili bjóða upp á faglegt tómstundarstarf þar sem börn fá að njóta sín í frjálsum leik og skipulögðu starfi. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þegar barn fær samþykkta vistun á frístundaheimilinu berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns sem foreldrar/forráðamenn þurfa að staðfesta.
Ef þið lendið í vandræðum með skráningu þá endilega heyrið í okkur.
Tengdar fréttir

1. júní, 2026
Fréttir
Hreinsunarátak fyrir timbur í dreifbýli
Líkt á síðastliðin ár stendur Borgarbyggð fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu. Í júní, nánar tiltekið vikurnar 5.-11. júní og 16.-22. júní verða gámar fyrir timbur aðgengilegir á eftirfarandi stöðum: 5. – 11. júní Bæjarsveit Brautartunga Bjarnastaðir – á eyrinni Síðumúli Lundar 16. – 22. júní Lyngbrekka Lindartunga Eyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur) Högnastaðir Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur …

29. maí, 2026
Fréttir
Borgarbyggð annast fyrirspurnir vegna Skorradalshrepps
Vegna sameiningar Borgarbyggð og Skorradalshreppur er bent á að allar fyrirspurnir varðandi málefni Skorradalshrepps skulu berast til Borgarbyggðar frá og með mánudeginum 1. júní nk. Hægt er að hafa samband með tölvupósti á netfangið Borgarbyggd@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.