Í blíðunni við Hamar var s.l. miðvikudag undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Golfklúbbs Borgarness um rekstur golfvallarins að Hamri. Samningur þar að lútandi var samþykktur af sveitarstjórn 16. apríl s.l. Golfvöllurinn er í landi Borgarbyggðar og felur samningurinn í sér að golfklúbburinn sér um rekstur, viðhald og uppbyggingu golfvallarins. Þá er í samningnum fjallað um áherslur Golfklúbbs Borgarness á öflugt barna- og unglingastarf og aðgengi almennings að golfvellinum sem opnu grænu svæði svo eitthvað sé nefnt. Samkvæmt samningnum leggur Borgarbyggð Golfklúbbi Borgarness árlega 12 milljónir króna og er samningurinn til sex ára en verður endurskoðaður að þremur árum liðnum.
Að Hamri hefur Golfklúbbur Borgarness byggt upp einn glæsilegasta golfvöll landsins og er mikill metnaður fyrir áframhaldandi uppbyggingu svæðisins. Golfvöllurinn að Hamri er ekki aðeins mikilvægur fyrir hina fjölmörgu iðkendur golfíþróttarinnar í Borgarbyggð heldur laðar hann á hverju sumri fjölda gesta í sveitarfélagsið. Síðustu ár hefur Borgarbyggð veitt Golfklúbbnum stuðning með sérstökum samningum svo sem vegna framkvæmda. Það er kærkomið fyrir báða aðila að komin sé formfesta og fyrirsjáanleiki í samstarf Borgarbyggðar og klúbbsins um rekstur, viðhald og uppbyggingu svæðisins.
Tengdar fréttir

2. fundur sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
2. fundur Sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, fimmtudaginn, 11. júní nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 2. fundur sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Streymi frá fundinum má finna hér.

Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð
Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar var haldinn í Hjálmakletti síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Allir leikskólarnir í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu og var það unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Á árinu hafa leikskólarnir því rýnt í málörvunarstarfið sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar í …