Samkomulag um stækkun athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi undirritað.
Borgarbyggð og Steypustöðin hafa undirritað samkomulag um stækkun lóðar fyrirtækisins við Engjaás í Borgarnesi. Með samkomulaginu fær Steypustöðin um 3,5 hektara svæði til frekari uppbyggingar og þróunar fyrirtækisins. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum en til stendur að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem skapar að líkindum 35-40 störf í Borgarnesi. Lóðin fellur vel að núverandi atvinnustarfsemi félagsins og gerir því kleift að mæta aukinni eftirspurn og styrkja enn frekar stoðir starfseminnar í Borgarnesi.
Samkvæmt samkomulaginu annast Steypustöðin og kostar gerð nýs deiliskipulags fyrir svæðið við Engjaás 2 til 10, í samvinnu við skipulagsyfirvöld í Borgarbyggð. Fyrirtækið ber jafnframt alla ábyrgð og kostnað af nauðsynlegum framkvæmdum á lóðinni. Gatnagerðargjöld vegna lóðarinnar nema samtals 30,5 milljónum króna. Samhliða er tryggð aðkoma og lóð fyrir nýja spennistöð RARIK sem þjóna mun svæðinu.
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar:
„Það er mikið fagnaðarefni að ná þessu samkomulagi við Steypustöðina. Uppbygging á svæðinu styður við öflugt atvinnulíf í Borgarbyggð og mun skapa ný og verðmæt störf í heimabyggð. Með því að Steypustöðin taki að sér nýtt deiliskipulag og framkvæmdir á svæðinu er stigið mikilvægt skref í markvissri uppbyggingu atvinnusvæða, í góðu samstarfi við öflugt fyrirtæki.“
Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar:
„Undirritun samkomulagsins markar tímamót fyrir framtíðarþróun starfsemi okkar í Borgarnesi. Stækkun lóðarinnar við Engjaás skapar kærkomið svigrúm til nútímavæðingar og vaxtar í nýju húsnæði, sem tryggir öfluga þjónustu okkar til framtíðar. Við hlökkum til áframhaldandi farsæls samstarfs við Borgarbyggð og samfélagið á svæðinu.“
Nánar um lóðina og ákvörðun gatnagerðargjalda:
Um er að ræða 35.246 fermetra landsvæði úr landi Kárastaða sem fengið hefur heitið Engjaás 10. Það liggur að núverandi lóðum Steypustöðvarinnar við Engjaás 2 til 8.
Steypustöðin fékk svæðið til stækkunar á eigin starfsemi með ákvörðun byggðarráðs Borgarbyggðar á 652. fundi ráðsins 27. nóvember 2023, sem sveitarstjórn staðfesti á 277. fundi sínum. Úthlutunin byggði á undanþáguákvæði 4. mgr. kafla 2.4 í reglum um úthlutun lóða í Borgarbyggð.

Tengdar fréttir

Viðtalstímar sveitarstjóra
Af gefnu tilefni viljum við benda á að hægt er að bóka viðtal við Unni Brá sveitarstjóra á heimasíðunni Borgarbyggðar. Bókaðu viðtal hjá sveitarstjóra hér