roofing
Fréttir og tilkynningar
30. júní, 2026
Fréttir
Opið er fyrir skráningu barna í frístund fyrir komandi skólaár 2026-2027. Skráning fer fram inn á vala.is.
Frístund hefst eftir að skóladegi lýkur og er opin til klukkan 16:00/16:15
Frístundarheimili bjóða upp á faglegt tómstundarstarf þar sem börn fá að njóta sín í frjálsum leik og skipulögðu starfi. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við skráningu er mikilvægt að allar upplýsingar séu réttar, sérþarfir teknar fram og ef barnið þarf á stuðningi að halda.
Þegar barn fær samþykkta vistun á frístundaheimilinu berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns sem foreldrar/forráðamenn þurfa að staðfesta.
Foreldrar eru hvattir til að sækja um fyrir 3.ágúst.
Tengdar fréttir

24. júní, 2026
Fréttir
Brákarhátíð 25-27. júní
Brákarhátíð verður haldin í Borgarnesi, dagana 25-27.júní. Hátíðin er haldin af Hollvinasamtökum Borgarness, um er að ræða fjölbreytta og skemmtilega dagskrá alla helgina. Við hvetjum einnig íbúa til að skreyta sín hverfi og taka þátt í litagleðinni.