Leikskólinn Ugluklettur hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir þróunarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf.
Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur nú tilkynnt um tilnefningar til verðlaunanna í ár.
Tilnefning Ugluklettar er í flokki þróunarverkefna og er hún mikil viðurkenning fyrir það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið að innan leikskólans. Þetta er í sjöunda sinn sem Íslensku menntaverðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist árið 2020.
Þróunarverkefnið Stilla stóð yfir í þrjú ár með þátttöku leikskólanna Aðalþings í Kópavogi, Iðavallar á Akureyri, Rauðhóls í Reykjavík og Uglukletts í Borgarnesi sem unnu saman með fræðafólki frá Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og University of South-Eastern Norway.
Markmið verkefnisins var að skapa rými fyrir hæglátt leikskólastarf, þar sem börn fá nægan tíma og svigrúm til að sökkva sér í leik, kanna hugmyndir sínar og ljúka þeim verkefnum sem skipta þau máli.
Nafnið Stilla vísar bæði til kyrrðar og þess að finna sameiginlegan takt, líkt og þegar hljóðfæri eru stillt saman. Hæglætið felst ekki í því að allt gangi hægt fyrir sig, heldur að starfsfólk stilli sig inn á börnin, samstarfsfélaga, umhverfið og aðstæður hverju sinni. Í kjarna þess liggja nærvera, hlustun, samfella og næmni fyrir fjölbreyttum þörfum og takti hvers barns
Nánar um verkefnið:
Stilla – hæglátt leikskólastarf: Að finna taktinn í daglegu lífi leikskólans
Tilnefningar til íslensku menntaverðlaunanna 2026
Þetta er í annað sinn sem Ugluklettur hlýtur tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunana, árið 2023 hlaut Ugluklettur tilnefningu í flokki framúrskarandi skólastarf eða menntaumbót, fyrir þróun lýðræðislegs og skapandi leikskólastarfs.
Við óskum starfsfólki Leikskólans Uglukletts innilega til hamingju með þessa glæsilegu tilnefningu!
Tengdar fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027
Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað er þjónustustefna? Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Borvinna og sprengingar hefjast við Birkiklett og Húsasmiðjuna.
Vegna framkvæmda við Birkiklett og Húsasmiðjuna stendur nú yfir borunvinna. Stefnt er að því að hefja sprengingar mánudaginn 2. nóvember og er áætlað að þær standi yfir í tvær vikur Jarðvinna er unnin af Borgarverki. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir skilninginn.