Endurbótum á kortasjá Borgarbyggðar er nú lokið. Meðal þeirra breytinga sem gerðar voru er uppfærsla á öryggisstillingum og fleiri upplýsingar.
Jafnframt hefur svæði Skorradalshrepps verið bætt við í kortasjá Borgarbyggðar í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna. Þar með eru teikningar, skipulagsgögn og aðrar upplýsingar sem tengjast Skorradal nú aðgengilegar á sama stað og önnur gögn Borgarbyggðar.
Kortasjáin er mikilvægt upplýsingatæki fyrir íbúa, landeigendur, hönnuði og aðra sem þurfa að nálgast upplýsingar um skipulag, lóðir, mannvirki og önnur landupplýsingagögn innan sveitarfélagsins.
Við hvetjum íbúa og aðra áhugasama til að kynna sér kortasjána og nýta sér þær upplýsingar sem þar eru aðgengilegar.
Nánari leiðbeiningar við notkun á kortasjá má finna hér
Tengdar fréttir

Malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli.
Vegagerðin hefur gefið Colas heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Sunnudaginn 23. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00 . Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og …

Nýjar vatnsrennibrautir vígðar í Borgarnesi
Nýjar vatnsrennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru vígðar í gær við mikinn fögnuð sundlaugargesta. Fulltrúar í sveitarstjórn stýrðu vígsluathöfninni ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra. Framkvæmdir á endurnýjun rennibrautanna hófust í júní síðastliðnum, en þær gömlu höfðu þá þjónað landanum og gestum í nær 30 ár.Framkvæmdirnar drógust nokkuð á langinn og því hafði eftirvæntingin verið mikil. Það mátti svo sannarlega sjá …