4. nóvember, 2026
Fréttir

Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 

Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. 

Hvað er þjónustustefna? 

Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram hvaða þjónustu íbúar mega vænta og hvernig leitast verður við að tryggja aðgengi, jafnræði og faglega þjónustu í öllu sveitarfélaginu. 

Þjónustustefna Borgarbyggðar 2027 tekur til fjölbreyttra málaflokka, meðal annars fræðslu, félagsþjónustu, íþrótta- og tómstundastarfs, samgangna, umhverfis- og skipulagsmála, öryggismála og stjórnsýslu. Stefnan greinir á milli lögskyldra verkefna, lögheimilla verkefna og valkvæðra verkefna. Hún er unnin samhliða fjárhagsáætlun og endurskoðuð árlega að lágmarki. 

Íbúasamráð er mikilvægur hluti af mótun og þróun þjónustunnar. Markmiðið er að þjónustan taki mið af þörfum íbúa og staðbundnum aðstæðum í Borgarbyggð. 

Dagskrá íbúafunda 

Mánudaginn 2. nóvember 

  • Grunnskóli Borgarfjarðar, Hvanneyri — kl. 17.00 
  • Grunnskóli Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum — kl. 20.00 

Þriðjudaginn 3. nóvember 

  • Félagsheimilið Þinghamar, Varmalandi — kl. 20.00 

Miðvikudaginn 4. nóvember 

  • Grunnskólinn í Borgarnesi — kl. 17.00 
  • Lindartunga — kl. 20.00 

Fundirnir eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu um framtíð þjónustunnar í Borgarbyggð. 

Nánari upplýsingar 

Þjónustustefna Borgarbyggðar 2026 er aðgengileg hér:

Tengdar fréttir

3. nóvember, 2026
Fréttir

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar

Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …