Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026
Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2026.
Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu.
- Bílflök og annað almennt brotajárn
- Ryðfrítt stál og ál
- Rafgeyma
- Rafmótora
- Hjólbarða
Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili sín þangað sem Hringrás sækir efnið. Hringrás tekur á móti pöntunum í síma 5501900 eða afgreidsla@hringras.is
Við pöntun þarf að koma fram:
- Nafn, sími og netfang þess sem pantar
- Nákvæm staðsetning (bær og svæði)
- Áætlað magn
Frekari upplýsingar veitir Hafþór Ægir Þórsson hjá Hringrás í síma 6608916
Frestur til að senda pöntun er til 1. nóvember 2026
Umhverfisfultrúi Borgarbyggðar
Tengdar fréttir

Vertu með og hafðu áhrif – Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar
Vertu með og hafðu áhrif Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar Vinna við mótun nýrrar þjónustustefnu Borgarbyggðar stendur yfir og lykillinn að því að stefnan verði farsæl er að íbúar taki virkan þátt í ferlinu. Markmiðið er að móta framtíðarsýn um skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sveitarfélagsins sem taki mið af þörfum og væntingum allra íbúa. Af þessu tilefni verður efnt …