14. nóvember, 2023
Fréttir

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. nóvember sl. eftirfarandi tillögu samkvæmt 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022 – Landbúnaðarkaflinn

Breytingin tekur til stefnu aðalskipulagins fyrir landbúnaðarsvæði og þær framkvæmdir og mannvirki sem heimilaðar eru á landbúnaðarsvæðum. Skerpt er á heimildum til að tryggja hagkvæma og skynsama nýtingu, gott landbúnaðarland verði áfram nýtt til matvælaframleiðslu, uppbyggingu hagað þannig að núverandi innviðir séu nýttir betur og ný íbúðarhús verði ekki úr alfaraleið.

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 var auglýst frá 20. júlí til 18. september 2023.

Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim send umsögn.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Landbúnaðarkaflinn

Tengdar fréttir

5. nóvember, 2026
Fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst

Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

5. nóvember, 2026
Fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október.   Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson.   Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …