16. janúar, 2026
Fréttir

Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum í endurnýjun vatnsrennibrauta í sundlaug Borgarness. Verkið felur í sér hönnun, innkaup og uppsetningu nýrra vatnsrennibrauta á núverandi undirstöður, ásamt fullnaðarfrágangi.

Helstu verkliðir:

  • Hönnun og teikningagerð
  • Aðstöðusköpun
  • Niðurrif eldri búnaðar
  • Vörukaup og tilheyrandi búnaður
  • Uppsetning vatnsrennibrauta
  • Fullnaðarfrágangur

Nýjar vatnsrennibrautir skulu tengjast núverandi stigahúsi og vera festar á núverandi undirstöður. Innifalið í verki er að útvega viðeigandi sæti fyrir rennibrautir og skila fullbúinni, rekstrarhæfri lausn með öllum hönnunargögnum.

Útboðsgögn verða aðgengileg hér á útboðsvef Borgarbyggðar, frá 15. janúar 2025.

Ef aðstoð vantar vegna aðgangs að Ajour, vinsamlegast hafið samband í tölvupósti: framkvaemdir@borgarbyggd.is.

Tengdar fréttir

10. mars, 2026
Fréttir

275. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

275. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í Ráðhúsi Borgarbyggðar, fimmtudaginn, 12. mars nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 275. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

10. mars, 2026
Fréttir

Sveitarstjórnarfundur unga fólksins

Í dag 10. mars fer fram Sveitarstjórnarfundur unga fólksins. Fundurinn er settur upp líkt og sveitarstjórnarfundur með flottum fulltrúum Ungmennaráðs Borgarbyggðar og kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum. Á fundinum kynna ungmenni sín áherslumál og ræða við sveitarstjórnarfulltrúa. Dagskrá fundar; Freyja Ísfold Guðmundardóttir – Forvarnir í Borgarbyggð Ernir Daði Arnberg Sigurðsson – Íþróttir og tómstundir í Borgarbyggð Hrafnhildur Ósk Orradóttir – Skólastarf í Borgarbyggð …