Borað eftir heitu vatni á Borg á Mýrum
Veitur hefja borun á rannsóknarholu á Borg á Mýrum í vetur. Staðsetningin var lögð til af sérfræðingum ÍSOR í samvinnu við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar.
Framkvæmdir hefjast í október
Undirbúningur borplans hefst í október. Þegar borplanið er tilbúið ásamt tengingum við vatn, rafmagn og frárennsli fyrir borvatnið þá verður hægt að flytja borinn á staðinn.
Frárennsli borvatns
Við borunina er notað vatn og leir til að flytja borsvarf upp úr holunni og verja mögulegar vatns- og jarðhitaæðar.
Unnið er í góðu samstarfi við sveitarfélagið að því að tryggja að fínefni sem berst upp með vatninu hafi sem minnst áhrif á umhverfið.
Í nágrenninu er lögn sem grípur ofanvatn á iðnaðarsvæðinu og leiðir það út í læk. Veitur munu einnig nýta þá lögn fyrir skolvatn frá bornum.
Tímaáætlun
Október-nóvember
Borplan undirbúið ásamt tengingum við rafmagn og vatn.
Umferð vinnuvéla á svæðinu.
Nóvember
Borun hefst.
Gera má ráð fyrir að litur sjáist við ströndina neðan mýrar. Það eru náttúrulegur bergmulningur sem kemur uppúr borholunni.
Janúar
Borun er lokið og rannsóknir á holunni taka við.
Tengdar fréttir

Borvinna og sprengingar hefjast við Birkiklett og Húsasmiðjuna.
Vegna framkvæmda við Birkiklett og Húsasmiðjuna stendur nú yfir borunvinna. Stefnt er að því að hefja sprengingar mánudaginn 2. nóvember og er áætlað að þær standi yfir í tvær vikur Jarðvinna er unnin af Borgarverki. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir skilninginn.