3. september, 2026
Fréttir

Kæru foreldrar/forráðafólk nýfæddra barna

Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með ykkur á þessum tímamótum. Barnapakkanum fylgja hamingjuóskir og vonir um bjarta framtíð.

Eftirtaldir aðilar hafa tekið höndum saman um Barnapakka Borgarbyggðar en hann gildir sem 10.000 kr. inneign hjá eftirtöldum þjónustuaðilum:

  • Kaupfélag Borgfirðinga
  • Hár center
  • Fok
  • Hársnyrting Dagnýjar
  • Bara Bistro
  • Gunnhildur Lind ljósmyndari
  • Metabolic Borgarnes
  • Nuddstofa Margrétar
  • Apótek Vesturlands
  • Brúartorg

Aldan, verndaður vinnustaður í Borgarbyggð, annast utanumhald á þessu verkefni í samstarfi við starfsfólk ungbarnaeftirlits Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Borgarnesi. Þeir aðilar sem standa að Barnapakka Borgarbyggðar bjóða nýjan einstakling velkominn og óska honum og foreldrum hans alls hins besta. Með kærri kveðju Aldan og Borgarbyggð

Hægt er að nálgast barnapakkana hjá Öldunni fyrir börn fædd 2026 – 2027.

Með kærri kveðju Aldan og Borgarbyggð

Tengdar fréttir

1. september, 2026
Fréttir

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á …