Viðburði er að finna víðs vegar um sveitarfélagið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
08:00 – Fánar dregnir að húni
Við hvetjum alla íbúa til að draga íslenska fánann að húni í tilefni dagsins.
09:30- Samhjól með HjólVest.
Öllum er boðið í skemmtilegan hjólatúr, mæting er við Íþróttahúsið í Borgarnesi.
10:00–11:00 – Íþróttahátíð á Skallagrímsvelli og í nýja fjölnota íþróttahúsinu.
17. júní hlaupið, leikir og Sólon og Dimma Dúskur koma í heimsókn.
11:00–12:00 – Safnahús Borgarfjarðar
Skoppa og Skrítla skemmta gestum, föndur og samvera.
12:15–13:30 – Andlitsmálning í félagsmiðstöðinni Óðal
Andlitsmálning fyrir börn á öllum aldri og upphitun fyrir skrúðgöngu.
13:30 – Skrúðganga
Gengið frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð. Óvænt furðuvera tekur þátt!
13:45 – Hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði
Kynnir verður enginn annar en Lalli töframaður, Blaðrarinn gefur gestum uppblásin blöðrudýr, ávarp fjallkonu, söngatriði, listamanneskja Borgarbyggðar, hátíðarræða, sölutjöld, nammiregn í boði Slökkviliðs Borgarbyggðar, hoppukastalar og teygjuhopp.
16:00 – Hátíðarmessa í Brákarhlíð
Séra Heiðrún Helga býður öllum í hátíðarmessu.
Kvenfélagið Björk og Ungmennafélagið Eldborg standa fyrir hefðbundnum 17. júní hátíðarhöldum.
Reykholt
Messureið í Reykholtskirkju kl. 11:00
Ungmennafélag Reykdæla stendur svo fyrir hátíðarhöldum með útihátíðardagskrá í Logalandi frá klukkan 13:00.
Slökkviliðið með froðurennibraut, hátíðarræða, fjallkona, karamelluregn og fleira.
Varmaland
Umf. Stafholtstungna stendur fyrir 17. júní hátíð á Varmalandi kl 15:00. Hátíðin er haldin í samstarfi við Kvenfélag Stafholtstungna og Björgunarsveitina Heiðar.
leikir fyrir börnin á fótboltavellinum, grillaðir sykurpúðar, 17. Júní hlaup og verðlaunapeningur fyrir alla.
Fánaganga í skjólbeltinu, farið verður af stað frá Sverrisvelli kl.11:30. Grillað verður á staðnum og farið í leiki
Ath tímasetningar og staðsetningar gætu breyst.
Tengdar fréttir

Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26.október.
Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26. október vegna framkvæmda við gatnamót Egilsgötu og Bröttugötu. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á meðan á framkvæmdum stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026
Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026 Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2026. Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu. Bílflök og annað almennt brotajárn Ryðfrítt stál og ál Rafgeyma Rafmótora Hjólbarða Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili …