Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
20. apríl 2010 11:25

Hádegisfundur

Hér með er boðað til hádegisfundar í Geirabakaríi á miðvikudaginn kemur þann 21/4 Frá kl 12-13

 

Efni fundarins verður:

 

  • Kynning á verkefnum vinnuhópsins, þ.m.t. kynning á áfangaskýrslu sem hópurinn hefur unnið.
    Kynnið ykkur endilega skýrsluna fyrir fundinn, en hana má finna á eftirfarandi slóð: http://borgarbyggd.is/Files/Skra_0041315.pdf
  • Skipulag þess starfs sem framundan er.
  • Helgi Eyleifur Þorvaldsson, formaður nýstofnaðs Framfarafélags Borgfirðinga kynna það félag, hvað gert hefur verið og hvað framundan er.
  • Sagt verður frá fyrirhuguðum vinnudögum seinna í mánuðinum með Fjárfestingastofu þar sem ætlunin er að greina styrkleika svæðisins og búa það betur undir að taka við og þjóna erlendum fjárfestum.
  • Uppboð á hugmyndum. Nokkrar hugmyndir sem fæddust á stefnumótinu verða ræddar og leitað að áhugasömum einstaklingum til að hlúa að þeim.

 

Við vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.

Vinnuhópurinn.

meira...
13. apríl 2010 10:43

Framvinduskýrsla

Nýlega var sveitastjórn kynnt drög að framvinduskýrslu um vinnu hópsins og helstu niðurstöður Stefnumóts 2010. Skýrsluna vann Vífill Karlsson hagfræðingur hjá SSV. Skýrsluna má nálgast hér.

meira...
2. febrúar 2010 11:13

Stefnumót 2010

Stefnumótagestir. Mynd Skessuhorn
Síðastliðinn laugardag 30. janúar var haldið “Stefnumót 2010” um atvinnu- og byggðamál í Borgarbyggð og nágrenni. Þingið var haldið í Menntaskóla Borgarfjarðar undir styrkri stjórn Þórólfs Árnasonar. Alls tóku um 130 manns þátt í þinginu sem var öllum opið og sköpuðust líflegar umræður og góðar hugmyndir litu dagsins ljós í vinnu - og umræðuhópum. Nánar verður sagt frá niðurstöðum þingsins fljótlega þegar búið er að vinna úr og draga saman helstu niðurstöður og hugmyndir. 

meira...
28. janúar 2010 05:06

Stefnumót 2010

Næstkomandi laugardag 30. janúar verður haldið “Stefnumót 2010” um atvinnu- og byggðarmál í Borgarbyggð og nágrenni. Þingið verður í Menntaskóla Borgarfjarðar og hefst kl. 10.00. Húsið opnar kl. 09.00 og boðið verður upp á léttan morgunverð. Þingið er opið öllu áhugafólki og eru íbúar hvattir til að koma og taka þátt en þarna gefst gott tækifæri til að hafa mótandi áhrif á framtíð samfélagsins okkar. Hér er hægt að sjá kynningu á "Stefnumótinu 2010" en með því að smella á "meira" er hægt að sjá alla dagskrána.

meira...
9. desember 2009 11:16

Hádegisfundur átakshóps í atvinnumálum á morgun

Átakshópur um atvinnumál í Borgarbyggð boðar til opins fundar með Fjárfestingastofu á morgun, fimmtudaginn 10. desember kl. 12:00 í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar mun Þórður Hilmarsson framkvæmdastjóri Fjárfestingastofu segja frá möguleikum í fjárfestingum erlendra aðila, hvað þurfi til og hvað Fjárfestingastofa er að skoða um þessar mundir. Spurt verður hvort það sé eitthvað sem er áhugavert fyrir Borgarfjörð og íbúa Borgarbyggðar. Hægt verður að kaupa súpu og brauð á staðnum. 

meira...
24. nóvember 2009 11:14

Hádegisfundur um atvinnumál í Borgarbyggð

Verkefnahópur Borgarbyggðar um atvinnumál boðar til opins fundar í Geirabakaríi í Borgarnesi í hádeginu, fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 12:00. Sagt verður frá vinnuhópi um atvinnumál í Borgarbyggð sem nýlega tók til starfa. “Við munum segja frá Neðribæjarsamtökunum, Miðaldaböðum, Atvinnuráðgjöf Vesturlands og því sem við erum að vinna að. Einnig er fundurinn hugsaður sem vettvangur fyrir þá sem “luma” á góðum hugmyndum og líka fyrir þá sem vilja ná sér í hugmynd til að hrinda í framkvæmd. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta og leggja með því samfélagi okkar lið í þeim verkefnum sem framundan eru.  Tökum fyrsta skrefið í sameiningu, og göngum svo í takt í framhaldinu – samfélagi okkar til góða,” segir í tilkynningu frá hópnum. 

Geirabakarí býður upp á súpu og kaffi á kr. 560. 

meira...