Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
10. september 2010

Félagsmiðstöðin Bifröst

Starfsmaður óskast til að halda utan um kvöldstarf í félagsmiðstöð unglinga, Gauknum Bifröst í vetur.

Um er að ræða félagsmiðstöðvarstarf 1 x í viku fyrir unglinga í 7. – 10. bekk frá kl. 20.00 – 22.00

Starfsmaður þarf að hafa áhuga og helst reynslu af að vinna með unglingum og vera drífandi í að leiða þetta starf með þeim.

Að öðru leiti felst starfið í gæslu, umsjón með tækjum og hafa dagskrá í miðstöðinni í samráði við unglingaráð hennar.

Starfsmaður þarf að vera reglusamur og hafa hreint sakavottorð.

 

Umsóknir sendist til íþrótta og æskulýðfulltrúa á indridi@borgarbyggd.is   eða í Ráðhús Borgarbyggðar fyrir 17. sept. n.k.

 

Nánari upplýsingar getur einnig Hjalti Sigurðarson nemi á Bifröst gefið um starfið en hann var í þessu skemmtilega starfi í fyrravetur.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.

 

8. september 2010

Ný símanúmer í Grunnskóla Borgarfjarðar

 

Grunnskóli Borgarfjarðar hefur nú fengið ný símanúmer. Aðalnúmer skólans er 430 1500 og þar fæst samband við allar deildir skólans. Símaskrá skólans má nálgast hér.

8. september 2010

Námskeið í olíumálun

Símenntunarmiðstöðin hyggst halda námskeið í olíumálun ef næg þátttaka fæst. Farið verður í undirstöðuatriði olíumálunar, litblöndun. Myndbyggingu, áferð og íblöndun. Unnið verður á pappír og striga. Pappír og strigi er innifalið í námskeiðsgjaldi en þátttakendur taka með sér olíuliti og pensla.

Kennt verður að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, mánudaga kl. 19-21 frá 13. september til 25. október. Kennari er Áslaug Sigvaldsdóttir kennari og myndlistakona.

Einungis vantar tvo þátttakendur í viðbót til að unnt sé að halda námskeiðið og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig.

7. september 2010

Opnunartími leikskóla

Leikskólabörn í ráðhúsheimsókn á öskudaginn
Byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 2. september síðastliðinn að lengja daglegan opnunartíma leikskóla til kl. 16:30 frá og með 1. október næstkomandi.  Föstudagslokun vegna starfsmannafunda verður óbreytt út yfirstandandi ár en byggðarráð felur fræðslunefnd að skoða möguleika að breyttu fyrirkomulagi frá og með árinu 2011.      

6. september 2010

Byggðasafni færð rauðvínsflaska úr Pourquoi Pas?

Byggðasafni Borgarfjarðar hefur verið færð kærkomin gjöf. Um er að ræða aldraða rauðvínsflösku úr rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? sem fórst við Mýrar í september 1936.  Það var Eysteinn Sveinbjörnsson sem færði safninu flöskuna, en hún hefur verið varðveitt hjá honum allar götur síðan skipið fannst á hafsbotni sumarið 1961, eða í tæplega hálfa öld. Ennfremur kom hann með blaðaúrklippur frá þeim tíma að skipið fannst og verða þær varðveittar í Héraðsskjalasafninu.